Umdeild auglýsing tekin úr birtingu: „Ég skammast mín ekkert fyrir hana“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. október 2023 06:46 Geir Ólafsson sér ekki eftir umdeildri auglýsingu sinni fyrir Las Vegas Christmas Show. Hann segir auglýsinguna byggja á sannsögulegum atburðum. Vísir/Vilhelm Stórsöngvarinn Geir Ólafsson sér ekki eftir umdeildri auglýsingu sinni sem tekin var úr birtingu. Hann segist ekki hafa ætlað að móðga neinn og segir auglýsinguna, sem er fyrir Las Vegas-jólatónleika hans, byggja á sannsögulegum atburðum.
Hlustendur ráku upp stór augu (og hugsanlega eyru) þegar þeir hlustuðu á þátt Ívars Guðmundssonar á Bylgjunni í gærmorgun. Þar spilaðist auglýsing frá Geir Ólafssyni vegna jólatónleika hans, Las Vegas Christmas Show, í Gamla bíói. En í auglýsingunni voru greinilega kynferðislegir undirtónar. „Bjóddu konunni þinni á mjög heita kvöldstund. Hún launar þér það þegar þið komið heim. Las Vegas Christmas Show. Tryggðu þér miða á Tix.is,“ segir í auglýsingunni. Hlusta má á umrædda auglýsingu í spilaranum að neðan. Harma birtingu auglýsingarinnar Auglýsingin vakti greinilega svo hörð viðbrögð að Tix, sem sjá um miðasöluna fyrir tónleikana, sáu sig knúin til að gefa frá sér tilkynningu vegna auglýsingarinnar. „Fyrr í dag fór útvarpsauglýsing í loftið á vegum viðburðarhaldara sem samræmist ekki með neinum hætti stefnu né viðhorfi Tix miðasölu. Auglýsingar á vegum viðburðarhaldara eru ekki að nokkru leyti tengdar Tix miðasölu né bornar undir Tix miðasölu áður en þær fara í loftið,“ sagði í tilkynningu Tix á Facebook. „Í kjölfar ábendingar frá viðskiptavin um tilvist auglýsingarinnar var haft samband við viðburðarhaldara og auglýsingin tekin úr birtingu. Tix miðasala styður heilshugar baráttu gegn ofbeldismenningu og harmar birtingu á þessari auglýsingu,“ segir enn fremur. Vísir hafði samband við Geir til að spyrja hann út í auglýsinguna og viðbrögðin við henni. Yfirlýsing Tix vegna málsins.Facebook Auglýsingin byggi á sannsögulegum atburðum „Ég hef ekki kynnt mér þetta nægilega mikið til að hafa einhverja skoðun á þessu. Ég veit ekki um hvað þetta mál snýst í raun, í alvöru,“ sagði Geir þegar blaðamaður spurði út í viðbrögðin við auglýsingunni. Það hefur enginn haft samband við þig? „Þau höfðu samband við mig á Tix og ég vissi að þetta hefði farið eitthvað fyrir brjóstið á fólki. Þannig þetta var tekið út,“ segir hann. Geir Ólafsson hefur haldið jólatónleika með Las Vegas-ívafi undanfarin ár.Facebook Þessi auglýsing er þá alveg komin úr birtingu? „Já, að sjálfsögðu. Við erum ekki að búa til vandræði að óþörfu. En ég skammast mín ekkert fyrir hana, bara svo það sé alveg á hreinu. Hún er byggð á sannsögulegum viðburðum,“ segir hann enn fremur. „Ég er bara að reyna að auglýsa tónleikana mína. Það er margt undir í þessu, ég er að gefa út plötu og er búinn að vera að vinna í þessu í mörg ár. Þannig ég hef ekkert annað að gera og er ekki vanur að vera upp á kant við fólk,“ segir Geir. „Ég er ekki þekktur fyrir að vera með dónaskap við fólk“ Aðspurður hvort hægt væri að nálgast auglýsinguna einhvers staðar segir Geir: „Hún er hvergi til, hún er farin út og verður ekkert notuð.“ Skilurðu óánægju fólks eða finnst þér þetta stormur í vatnsglasi? „Ég bara veit það ekki. Ég er ekkert upp á kant við fólk og ég get ekki verið með heimsins áhyggjur fólks á mínum herðum. Ég hef alveg nóg að hugsa um mig og mína fjölskyldu. Það er bara þannig,“ segir hann. Herbert Guðmundsson er meðal þeirra sem troða upp á tónleikunumm.Facebook „Ég er ekki þekktur fyrir að vera með dónaskap við fólk. Ég tala ekki illa um fólk, ég er ekki á Facebook að tala niður til fólks, til neinna minnihlutahópa eða neitt. Ég hef ekki gert neitt og hef í raun ekki neitt um þetta að segja nema bara að ég þakka þér fyrir að hringja í mig og spyrja mig út í þetta,“ segir Geir. „En ég held að þið blaðamenn ættuð frekar að íhuga aðeins hvað ég er að gera með þessum tónleikum vegna þess að þarna er ég að koma með heimsklassahljóðfæraleika frá Hollywood. Og ég er að gefa ungum og efnilegum söngvurum tækifæri að syngja sem fá annars aldrei nein tækifæri.“ „Þannig ég er gríðarlega stoltur af þessu verkefni mínu og öllu sem ég hef verið að gera þarna,“ segir Geir Ólafsson um jólatónleikana.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira