Íslendingalið í eldlínunni í bikarkeppnum Evrópu Smári Jökull Jónsson skrifar 1. nóvember 2023 19:01 Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborg í dag. Vísir/Getty Þrjú Íslendingalið hafa lokið leikjum í bikarkeppnum víðsvegar um Evrópu nú í dag. Stefán
Stefán Teitur Þórðarson og liðsfélagar hans í danska liðinu Silkeborg tryggðu sér örugglega sæti í næstu umferð danska bikarsins eftir 5-1 sigur á Hvidovre. Stefán Teitur var í byrjunarliði Silkeborg sem leikur í úrvalsdeildinni líkt og Hvidovre sem vermir botnsæti deildarinnar. Sigur Silkeborg í dag var öruggur. Liðið komst í 3-0 áður en heimamenn minnkuðu muninn og unnu að lokum öruggan 5-1 sigur. Þá var Jón Dagur Þorsteinsson í byrjunarliði OH Leuven sem vann öruggan 5-0 sigur á Elene-Grotenberge í belgíska bikarnum. Jón Dagur var tekinn af velli á 68. mínútu í stöðunni 3-0. Hólmberg Aron Friðjónsson var í framlínu Holstein Kiel sem mætti Magdeburg í annarri umferð þýska bikarsins en bæði lið leika í næst efstu deild í Þýskalandi. Gestirnir frá Magdeburg komust í 2-0 í fyrri hálfleik en Holstein Kiel tókst að jafna metin í síðari hálfleiknum eftir tvö sjálfsmörk leikmanna Magdeburg. Hólmbert Aron var tekinn af velli á 75. mínútu þegar staðan var 2-2. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2. Í framlengingunni voru það gestirnir frá Magdeburg sem komust í 3-2 með marki í upphafi framlengingar en heimamenn jöfnuðu í uppbótartíma og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar voru heimamenn sleipari á svellinu. Þeir skoruðu úr fjórum spyrnum en Holstein Kiel aðeins úr þremur. Magdeburg tryggir sér þar með sæti í þriðju umferð bikarsins. Fréttin hefur verið uppfærð með lokastöðu í leik Holstein Kiel og Magdeburg.
Danski boltinn Belgíski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira