Fótbolti

Daníel Tristan inn­siglaði sigurinn með lang­þráðu marki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið í stóru hlutverki hjá 21 árs landsliðinu í ár.
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið í stóru hlutverki hjá 21 árs landsliðinu í ár. Getty/Ernest Kolodziej

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði eitt marka Malmö í 3-0 útisigri á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Íslenski framherjinn kom inn á völlinn sem varamaður og skoraði þriðja mark liðsins sjö mínútum seinna.

Jovan Milosavljevic og Sead Hakšabanovic höfðu komið Malmö í 2-0 á fyrstu tólf mínútum leiksins.

Malmö er í sjöunda sæti deildarinnar með 40 stig, einu stigi frá sjötta sætinu en níu stigum frá þriðja sætinu.

Þetta var langþráð mark hjá Daníel eða það fyrsta í sænsku deildinni á tímabilinu en þetta var leikur númer átján hjá honum. Þetta var fyrsta deildarmark hans síðan Daníel skoraði í sigurleik á GAIS í nóvember í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×