Líkur á áframhaldandi moldroki suðvestanlands Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2023 07:17 Hiti verður á bilinu núll til sex stig yfir daginn og hlýjast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir minnkandi norðaustanátt í dag, tíu til átján metrum á sekúndu í morgunsárið en fimm til þrettán metrum á sekúndu í kvöld. Búast má við dálítilli rigningu eða slydda á norðan- og austanverðu landinu en annars bjart að mestu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að líkur verði á moldroki suðvestanlands eins og það hafi verið undanfarið. Hiti verður á bilinu núll til sex stig yfir daginn og hlýjast syðst. „Á morgun verður suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Dálítil væta öðru hverju í flestum landshlutum en styttir upp um austanvert landið. Hiti um eða undir frostmarki en 0 til 4 stig vestan- og suðvestantil. Á laugardag verður austlæg átt. Úrkomulítið en rigning eða slydda með köflum í fyrstu á Vestfjörðum. Hiti breytist lítið. Á sunnudag er útlit fyrir vaxandi austanátt. Dálítil rigning eða slydda sunnantil en annars þurrt að kalla. Hiti um eða undir frostmarki en 0 til 5 stig sunnan- og suðvestantil,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt, og stöku skúrir eða él, einkum suðvestantil. Hiti 0 til 5 stig suðvestantil, en annars hiti um frostmark. Á laugardag: Snýst í austlæga átt 5-13 m/s, hvassast sunnantil. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag: Austanátt 8-15 og lítilsháttar úrkoma sunnantil á landinu og hiti 0 til 5 stig. Annars hægari, þurrt að kalla og hiti um frostmark. Á þriðjudag: Ákveðin austanátt og rigning eða slydda með köflum, einkum suðaustantil, en þurrt að kalla á Norðurlandi. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast sunnantil. Á miðvikudag: Útlit fyrir austlæga átt. Sumstaðar rigning en slydda eða snjókoma fyrir norðan. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Gæti náð 24 stigum þar sem best lætur „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Hiti á bilinu tíu til 18 stig í dag Allt að tuttugu stiga hiti á Norðausturlandi Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Vindur, skúrir og kólnandi veður Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Strekkingur og væta suðvestanlands en allt að 17 stig fyrir austan Sólríkt og fremur hlýtt í dag Skýjað og rigning af og til Hiti gæti náð fimmtán stigum Styttir víða upp og kólnar Von á allhvössum vindi og rigningu Gengur á með skúrum sunnan- og vestanlands Útlit fyrir þokkalegt veður Hægfara lægð yfir landinu Víða væta með köflum en rigningin samfelld á Suðausturlandi Bjart veður víðast hvar en víða frost í nótt Bjart suðvestantil en skýjað fyrir norðan og austan Víða bjart yfir landinu í dag Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Norðan kaldi eða stinningskaldi í dag Hæglætisveður um páskana Snjókoma eða slydda norðan- og austantil Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Sjá meira