Innlent

Þungt haldinn eftir elds­voða í Ár­bæ

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Búið er að ráða niðurlögum eldsins og unnið er að reykræstingu.
Búið er að ráða niðurlögum eldsins og unnið er að reykræstingu. Vísir

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í húsnæði í Stangarhyl 3 í Árbæ í Reykjavík snemma í morgun. Einn er þungt haldinn.

Slökkviliði barst tilkynning um eldinn um klukkan 5:50 í morgun. 

„Þetta leit illa út, það var tilkynnt um að fólk væri hugsanlega fast jafnvel inni og að einhverjir væru að stökkva út um glugga“, segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu.

Þegar slökkvilið mætti á staðinn hafði mikill fjöldi fólks komist út úr húsnæðinu en einum var bjargað út. Þrír voru fluttir á slysadeild en að sögn Stefáns er sá sem bjargað var út þungt haldinn.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu leit útkallið illa út þegar það barst um klukkan 5:50 í morgun. Vísir

Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út og eru enn á staðnum, en verið er að draga úr viðbragði. Búið er að slökkva eldinn og unnið að reykræstingu. 

Aðspurður um hvort íbúðarhúsnæði sé að ræða segir Stefán að húsnæðið sé ekki byggt sem slíkt en búið hafi verið að útbúa litlar íbúðir innan þess.

Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út þegar eldur kom upp í Árbæ snemma í morgun.Vísir

Uppfært klukkan 8:15.

Upphaflega bárust upplýsingar um að fjórir hefðu verið fluttir á slysadeild en þeir voru þrír. Rannsóknarlögregla var að mæta á vettvang og er rannsókn hafin á upptökum eldsins. Slökkvilið hefur dregið úr viðbragði en einn bíll frá þeim er nú á staðnum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×