Umfjöllun um súludansstaði í Ríkisútvarpinu sýni að uppgjörs sé þörf Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. nóvember 2023 13:40 Drífa Snædal, talsmaður Stígamóta. Vísir/Vilhelm Drífa Snædal, talskona Stígamóta, gagnrýnir umfjöllun skemmtiþáttanna Tjútt úr smiðju RÚV um íslenska nektardansstaði. Hún segir ljóst að Íslendingar þurfi uppgjör við fortíðina vegna staðanna þar sem mansal hafi viðgengist.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Drífu á Vísi. Sögu skemmtistaða á Íslandi eru gerð skil í þáttunum sem eru í umsjón þeirra Andra Freys Viðarssonar og Dóru Takefusa og sýndir eru á sunnudagskvöldum. Í umræddum þætti er fjallað um nektardansstaði á Íslandi og svo dannaðri skemmtistaði á borð við Astró og Nasa. Rifjað er upp að slíkir staðir hafi verið á nánast hverju horni á Íslandi um árabil. Konunum smalað eins og búfénaði Drífa vitnar í grein sinni til orða Ingibjargar Örlygsdóttur, betur þekkt sem Ingu á Nasa, sem var rekstrarstjóri Óðals þar sem boðið var upp á nektardans. Inga sagði að það hefðu verið strangar reglur í gildi á stöðunum sem menn hafi kunnað misjafnlega vel við þegar líða tók á nóttina. „Þú gast ekki farið með neinni stelpu neitt, þær voru allar keyrðar í hús sem við áttum, þær máttu ekki fara út fyrr en klukkan átta á morgnana þannig að þú varst ekkert að fara með þær eitthvað eftir vakt,“ sagði Inga í þættinum. „Það fór svona misjafnlega ofan í margan íslenska manninn eftir tíu gin og tonik en á endanum skildu þeir það náttúrulega að ég réði þarna, ekki þeir.“ Drífa segir að staðirnir hafi að flestra mati verið smánarblettur á samfélaginu, enda sé vitað meira í dag um aðstæður kvennanna á slíkum stöðum. „Á sínum tíma voru hins vegar ýmsir sem vörðu staðina. Stígamót vöruðu við þeim og töldu að þar væri stundað mansal, einkum og sér í lagi af því að konurnar sem þarna dönsuðu gátu ekki um frjálst höfuð strokið. Þeim var smalað eins og búfénaði á nóttunni og settar í húsnæði á vegum atvinnurekanda sem hafði hagnýtt líkama þeirra með skipulögðum hætti á súlum staðarins.“ Á nútímamáli mansal Drífa segir að eigendurnir hafi ráðið yfir konunum, hvað þær gerðu, hvar þær bjuggu og hvenær þær væru frjálsar ferða sinna. „Á nútímamáli heitir þetta grunur um mansal. Síðustu ár hefur verið reynt að byggja upp viðbragð hér á landi til að slíkt eigi sér ekki stað. Enn er langt í land og íslensk stjórnvöld sífellt snupruð á alþjóðavettvangi fyrir léleg viðbrögð við grunsemdum um mansal.“ Enn hafi aðeins einn dómur í mansalsmáli staðist á hærra dómsstigi. Það hafi verið fyrir þrettán árum síðan. Drífa segir að á hverju ári komi hins vegar upp fjöldi mála þar sem grunur leikur á að um mansal sé að ræða en þau hafi ekki farið alla leið í gegnum kerfið. Megi aldrei gerast aftur Drífa segir að með skipulögðu samstarfi fjölda fólks og samstarfssamningi Bjarkarhlíðar við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um mansalsmál horfi vonandi til betri tíðar. Brotaþolar mansals þurfi stuðning, öryggi og réttlæti. Manseljendur, hvort sem þeir brjóti á fólki í vændisþrælkun, vinnuþrælkun eða með annarri hagnýtingu verði að sæta afleiðingum. Einungis þannig sé hægt að uppræta mansal í fjölbreyttum myndum. „Á meðan fjöldi fólks eru á kafi í þessari vinnu birtist hins vegar á skjánum manneskja sem lýsir því beinlínis hvernig farið var með konur í tengslum við nektardansstaðina. Í kvölddagskrá RÚV, í skemmtiþætti, eins og ekkert sé eðlilegra. Við eigum sennilega lengra í land en við héldum. Það er ljóst að við þurfum uppgjör við fortíðina og hvernig við leyfðum því að gerast, sem þarna er lýst svo fjálglega. Það má aldrei gerast aftur.“
Jafnréttismál Mansal Ríkisútvarpið Veitingastaðir Næturlíf Fjölmiðlar Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira