Hér má heyra Kallinn á tunglinu en lagið flytur Jóhann ásamt tónlistarmanninum JóaPé:
Eitthvað sem small saman
Blaðamaður ræddi við Jóhann sem segir ferlið hafa verið magnað. Lagið fór fljótt inn á vinsældarlistann Top 50 Iceland á streymisveitunni Spotify.
„Ég og pródúser lagsins, Valgeir Snær, hittumst uppi í stúdíói í maí á þessu ári og bjuggum til lagið í einu sessioni. Það var bara eitthvað sem small saman. Við vorum búnir að vera að leita að einhverju fersku Indie-pop hljóði og þetta lag var útkoman.
Síðan sendi Valgeir lagið á JóaPé í gegnum Instagram og spurði hann hvað honum fyndist. JóiPé svaraði: „Þetta er ferskt hljóð! Má ég hoppa á þetta eða?“
Okkur fannst það náttúrulega frábær hugmynd. Við sáum bara strax fyrir okkur að hann myndi passa fullkomlega á þetta.“
Allt frá rappi til Johnny Cash
Jóhann er að eigin sögn rétt að byrja og sækir tónlistarinnblásturinn víða. Hann segist hlusta á bókstaflega alla tónlist.
„Sem krakki hlustaði ég alls konar, allt frá 50 cent til Johnny Cash og Rolling Stones. Ég myndi segja að minn stærsti innblástur í tónlist komi frá Daft Punk, Johnny Cash, 50 Cent, Kanye West, Sade, Michael Jackson, Dire Straits, Yung Lean, John Mayer, Central Cee og Lil Wayne. En ég gæti haft þennan lista töluvert lengri.“
Hann segist ekki draga innblásturinn af afmarkaðri tónlistartegund.
„Ég er til dæmis með nokkur lög í geymslunni sem eru af allt öðru tagi en Kallinn á Tunglinu. Sumt mun kannski sjokkera fólk pínu þegar ég gef það út. Ég vil sýna fólki að ég geti gert alla tónlist, sama hvaða flokki hún tilheyrir. Það er líka bara svo ótrúlega gaman að breyta til og gera eitthvað nýtt.“
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: