Fótbolti

Þjálfarar lýsa yfir ó­á­nægju með VAR: „Eigum skilið meiri virðingu“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sean Dych, Jürgen Klopp og Nuno Espirito Santo höfðu allir ástæðu til að tala um VAR eftir leiki sína á Þorláksmessu.
Sean Dych, Jürgen Klopp og Nuno Espirito Santo höfðu allir ástæðu til að tala um VAR eftir leiki sína á Þorláksmessu. Vísir/Getty

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, Sean Dyche, knattspyrnustjóri Everton og Nuno Espirito Santo, nýráðinn knattspyrnustjóri Nottingham Forest, létu allir óánægju sína með VAR í ljós eftir leiki liðanna sem fram fór á Þorláksmessu.

Liðin þrjú, Liverpool, Everton og Nottingham Forest, töpuðu öll stigum í leikjum sínum síðastliðinn laugardag þar sem Forest mátti þola 2-3 tap gegn Bournemouth, Everton tapaði 2-1 gegn Tottenham og Liverpool gerði 1-1 jafntefli við Arsenal í sannkölluðum toppslag deildarinnar.

Nuno Espirito Santo var að stýra Nottingham Forest í fyrsta sinn eftir að hann tók við liðinu af Steve Cooper sem var látinn taka poka sinn stuttu fyrir jól. Hann segist ekki skilja rauða spjaldið sem Willy Boly, varnarmaður liðsins, fékk eftir rétt rúmlega tuttugu mínútna leik og kallar eftir því að fá meiri virðungu frá dómurum.

„Ég er búinn að horfa á þetta aftur og aftur og ég skil þetta ekki enn þá,“ sagði Nuno eftir leikinn.

„Þarna voru gerð mistök og ég held að dómararnir í VAR-herberginu hefðu átt að gefa sér meiri tíma í að ráðleggja dómaranum á vellinum. Við, sem og stuðningsmennirnir, eigum skilið meiri virðingu. Þetta er ekki sanngjarnt.“

Dómarinn með frábært sjónarhorn

Eins og áður segir voru þeir félagar í Liverpool-borg, Sean Dyche og Jürgen Klopp, einnig óánægðir með frammistöðu VAR á Þorláksmessu. Dyche lét í sér heyra eftir að mark Dominic Calvert-Lewin var dæmt af gegn Tottenham.

Calvert-Lewin virtist þá vera að minnka muninn í 2-1 snemma í síðari hálfleik, en eftir skoðun myndbandsdómara var markið dæmt af sökum þess að Andre Gomes braut á Emerson Royal í aðdraganda marksins.

„Það sem vantaði í dag var rétt ákvörðun frá dómaranum,“ sagði Dyche eftir leikinn. „Við vorum frábærir eftir seinna markið þeirra. Við gerðum allt sem við gátum til að vinna leikinn, en í dag er risastór ákvörðun sem fellur ekki með okkur.“

„Dómarinn er með frábært sjónarhorn, línuvörðurinn líka, en svo stígur VAR inn í þetta og endurdæmir leikinn. Fyrir mér er leikurinn á vondum stað þegar kemur að brotum og VAR að finna leiðir til að gefa brot.“

Klopp

Stærsta augnablik Þorláksmessu kom þó líklega í stórleik Liverpool og Arsenal þegar Norðmaðurinn Martin Ødegaard handlék knöttinn innan vítategis í fyrri hálfleik. Gestirnir í Arsenal höfðu þá 0-1 forystu, en þrátt fyrir ítrekaðar endursýningar var ekkert dæmt.

„Þetta með vítið var skrýtin ákvörðun,“ sagði Klopp eftir jafntefli Liverpool og Arsenal. „Ég veit ekki hvort dómarinn sjái þetta, en þú horfir á þetta og ég er ekki viss um hvernig er hægt að segja að þetta sé ekki víti.“

„Ég er viss um að einhver mun koma og útskýra það fyrir mér af hverju þetta var ekki hendi, en ég veit samt ekki af hverju.“

„Hvernig getur einhver náungi sem situr inni á skrifstofu horft á þetta og ekki komist að þeirri niðurstöðu að mögulega ætti dómarinn að fara að kíkja betur á þetta?“ bætti Klopp við að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×