Víða bjartviðri í dag en bætir í vind á morgun Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2023 07:15 Hiti verður um frostmark syðst en öllu kaldara verður fyrir norðan. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri austlægri eða breytilegri átt í dag þar sem verða stöku él við norður- og austurströndina og snjókoma syðst, en annars víða bjartviðri.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði við frostmark syðst en frost niður að sautján stigum í innsveitum fyrir norðan. „Á morgun bætir aðeins í vind og dálítil él verða á víð og dreif. Framan af úrkomulítið vestanlands, en um kvöldið gengur þar í suðaustan strekking með éljum. Hlýnar aðeins í veðri. Á sunnudag (gamlársdag) er útlit fyrir hæga breytilega átt og stöku él, en á gamlárskvöld koma skil inn á austanvert landið. Snýst í norðan strekking þar með snjókomu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 5-13 m/s, hvassast syðst, og dálítil snjókoma af og til. Gengur í suðaustan 10-15 vestanlands um kvöldið með éljum. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst. Á sunnudag (gamlársdagur): Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað með köflum og él á stöku stað. Bætir í vind og fer að snjóa fyrir austan um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á mánudag (nýársdagur): Norðaustan 10-18, hvassast syðst. Rigning eða slydda austanlands, dálítil snjókoma norðan heiða, en úrkomuminna suðvestantil. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustanátt og dálítil él, en lítilsháttar væta við suðurströndinna og bjartviðri á Vesturlandi. Kólnar smám saman aftur. Á fimmtudag: Útlit fyrir fremur hæga norðaustlæga átt, sums staðar stöku él og allvíða frost.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira