Einhleypir og eitursvalir Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 22. mars 2024 07:01 Listinn samanstendur af eftirsóttustu piparsveinum landsins. Lífið á Vísi fékk sérstaka álitsgjafa til liðs við sig fyrir valið. Vorið er blómatímabil fyrir einhleypa einstaklinga. Með hækkandi sól og opnum hug ættu lesendur Vísis sem eru í leit að rétta makanum að líta vel yfir eftirfarandi lista sem samanstendur af eitursvölum og einhleypum karlmönnum.
Lífið á Vísi fékk sérstaka álitsgjafa til liðs við sig til að velja eftirsóttustu piparsveina landsins. Árni Hauksson fjárfestir (1966) „Ljúfmennið uppmálað sem er með með lúkkið og fjármálin á hreinu.“ Árni er mikið fyrir laxveiðar.Árni Brynjar Steinn Gylfason, þekktur sem Binni Glee (1999) „Binni Glee er súperstjarna og með því! Ótrúlega ljúfur, hjartahlýr og einlægur. Hann er smá feiminn en þegar maður kemst að þá er hann algjör meistari og fyndinn.“ Binni Glee er ein þekktasta raunveruleikastjarna landsins.Hulda Margrét Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco, tónlistarmaður (1985) „Hæfileikabúntið Arnór er afar geðslegur og kynngimagnaður einstaklingur sem gott er að vera í kringum.“ Arnór er söngvari Agent fresco en hljómsveitin bar meðal annars sigur úr bítum í Músíktilraunum árið 2008.vísir/andri marinó Leifur Welding, hönnuður og athafnamaður (1976) „Það er ekki nóg með að þessi maður sé einn hæfileikaríkasti hönnuður landsins þá ber hann listmannshæfileikana utan á sér þar sem fasið, útlitið og klæðaburðurinn er upp á tíu.“ Leifur Welding varð afi fyrir skemmstu. Ekki er að sjá það á útlitinu.Leifur Welding Birgir Olgeirsson, sérfræðingur í almannatengslum hjá flugfélaginu Play (1984) „Hlýi hjartaknúsarinn sem ber góðmennskuna utan á sér. Hann er hinn fullkomni kærasti ef þú spyrð mig.“ Birgir Olgeirsson spilar reglulega á gítar og syngur eins og engill á skemmtistöðum bæjarins.Birgir Olgeirsson Garpur Ingason Elísabetarson dagskrárgerðarmaður og fjallagarpur (1984) „Ef þú ert ævintýramanneskja, jákvæð og markmiðadrifin ættir þú að tékka á Garpi. One hell of a body, skemmtilegur og með fallegsta bros landsins.“ Garpur er mikill útivistarmaður og sýnir reglulega frá ferðum sínum um landið á samfélagsmiðlum.Garpur Sindri Snær Einarsson, heilbrigðisstarfsmaður og lífskúnstner (1991) „Hjartahlýr, gullfallegur og með flottasta stíl landins. Hann er alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að nýjustu tísku og því sem er flott. Hann er sömuleiðis ótrúlega hnyttinn og fyndinn, með bestu frasana. Hann er algjört catch!“ Sindri er sagður algjör frasakóngur.Sindri Snær Vilhelm Einarsson, þekktur sem Villi Wilson, athafnamaður og pítsabakari (1984) „Töffari af Guðs náð sem er ekki aðeins snillingur í eldhúsinu heldur lífinu einnig.“ Villi er einn besti pítsabakari landsins.Vilhelm Einarsson Jón Kári Eldon hönnuður (1989) „Brosmilda ljúfmennið úr Vesturbænum sem heillar dömurnar með augnaráðinu einu saman.“ Jón Kári skráði sig í sögubækurnar eftir að hann varð fyrsti knattspyrnumaðurinn á Íslandi sem fékk dóm vegna ummæla á X-samskiptasíðunni (áður Twitter) þegar hann lék með KV árið 2013.Jón Kári Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, þekktur sem Villi Vill, lögmaður (1971) „Hvað er meira aðlaðandi en töffari á mótorhjóli sem er kallaður stjörnulögmaðurinn? Ég bara spyr.“ Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, jafnan þekktur sem Villi Vill.Vísir/Vilhelm Björn Boði Björnsson flugþjónn og nemi (1999) „Sætur, heitur og sjarmerandi sem bræður alla með sínu töfrandi brosi.“ Björn Boði Björnsson flutti til New York fyrir skemmstu.Björn Boði. Heimir Bergmann fasteignasali (1965) „Ljúfur, léttur og kátur. Hvað er annað hægt að segja um þennan öðling?“ Heimir er bústettur á Akranesi og starfar sem fasteignasali hjá fasteignasölunni Lögheimili eignamiðlun.Heimir Bergmann Nökkvi Fjalar Orrason, frumkvöðull (1994) „Fróðleiksfús þúsundþjalasmiður sem er með skeggrót og bros sem slær öllu öðru við.“ Nökkvi er einn stofnanda umboðsskrifstofunnar Swipe Media, en sagði skilið við fyrirtækið í byrjun árs í fyrra.HI beauty Oddur Atlason rekstrarstjóri Petersen svítunnar (1996) „Oddur er mesti lífskúnstner sem þekkist. Hann er ótrúlega lífsglaður, kúltíveraður, alltaf gaman að tala við hann og ræða daginn og veginn. Hann lítur ávallt á björtu hliðar lífsins og er mikið sjarmatröll.“ Oddur er einn hressasti maður landsins.Oddur Atlason Björn Bragi Arnarsson fjölmiðla- og athafnamaður (1984) „Þessi maður hefur allan pakkan. Ríkur, myndarlegur og fyndinn!“ Björn Bragi býr í einu fallegasta húsi landsins á Seltjarnarnesi. Ágúst Beinteinn, þekktur sem Gústi B, útvarpsmaður og plötusnúður (2001) „Sjarmatröll sem kanna að heilla kvenpeninginn upp úr skónum með sínu blíða brosi. Töffari en samt svo mjúkur.“ Útvarpsmaðurinn Gústi B hélt uppi stemningunni auglýsingahléum í annarri þáttaröð af Idol.Vísir/Hulda Margrét Daniil Moroshkin, íslensk-rússneskur tónlistarmaður og rappari (2001) „Ungur og efnilegur töffari sem býr yfir ákveðinni dulúð. Þig langar alltaf að vita meira. Svo er hann á sama tíma með hlýlegt bros og afslappaða nærveru.“ Daniil var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum 2023.Vísir/Hulda Margrét Bassi Maraj raunveruleikastjarna (1998) „Bassi er fyndnasti maður landsins með heillandi nærveru og sjarma og hlátur sem nær manni í hvert einasta skipti. Svo er hann bara svo sætur.“ Bassi Maraj var viðmælandi í Einkalífinu fyrir skemmstu.Vísir/Vilhelm Snorri Ásmundsson listamaður (1966) „Snorri er ótrúlega lífsglaður og tekur lífinu ekki of alvarlega. Hann býr yfir djúpri og skemmtilegri visku og heldur í barnið í sér. Hann smitar út frá sér mikilli gleði.“ Snorri er sagður afar heillandi og töfrandi týpa.
Ástin og lífið Tíska og hönnun Tónlist Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Fleiri fréttir Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Sjá meira