Ný stefna, nýtt nafn og nýtt merki: „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“ Árni Sæberg skrifar 7. febrúar 2024 14:28 Forstjórinn kynnir stefnubreytinguna. Orkuveitan/OSSO Síðustu vikur og mánuði hefur farið fram mikil vinna við nýja stefnu Orkuveitu Reykjavíkur. Meðfram nýrri stefnu hefur ásýnd fyrirtækisins verið endurmörkuð. Héðan af verður það kallað Orkuveitan í daglegu tali, nýtt merki hefur verið hannað og einkennislitnum breytt úr bláum í grænan. Þá hefur setningin „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“ verið gerð að eins konar einkunnarorðum Orkuveitunnar.
Ný stefna og ný ásýnd Orkuveitunnar voru kynntar starfsmönnum á liðsheildardegi á laugardag, sem lauk með árshátíð. Vísi barst til eyrna að margt áhugavert hefði komið fram á kynningunni og sló því á þráðinn til Breka Logasonar, stjórnanda samskipta og samfélags hjá Orkuveitunni. Breki Logason er stjórnandi samskipta og samfélags hjá Orkuveitunni.Orkuveitan/Atli Már Hafsteinsson Hann segir að stefnumótunarvinna hafi hafist fyrir nokkrum mánuðum, upphaflega í gegnum vaxtarsprotaprógramm Orkuveitunnar með aðkomu starfsfólks þvert á fyrirtækið. KPMG hafi leitt þá vinnu og síðar hafi framkvæmdastjórar í fyrirtækinu, stjórnir móðurfélags og dótturfélaga ásamt eigendum fyrirtækisins komið að borðinu. Þetta er svokölluð skjáhvíla, sem mun skreyta tölvur starfsmanna þegar þær eru ekki í notkun.Orkuveitan Niðurstaða þeirrar vinnu hafi verið: „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.“ Á vef Orkuveitunnar má sjá nýja stefnu fyrirtækisins. Breki segir að á næstu vikum verði ný stefna og ný ásýnd kynnt með formlegum hætti út á við. Hundrað ára frumkvöðull Breki segir að til þess að endurspegla betur áherslur Orkuveitunnar í nýrri stefnu hafi verið ákveðið að fara í endurmörkun á vörumerkinu. Sú endurmörkun sé byggð á stefnunni og Brú Strategy hafi unnið það með Orkuveitunni. „Orkuveitan er hundrað ára frumkvöðull. Saga Orkuveitunnar er samtvinnuð sögu framfara og framsýni í íslensku samfélagi og innblástur endurmörkunarinnar var sóttur bæði í ríka arfleið og framtíðarsýn. Nýju merki Orkuveitunnar er ætlað að vera táknmynd nýrra tíma sem byggir á sterkum grunni og er aflvaki framfara, nýsköpunar og samstarfs. Græni liturinn setur margvíslega orku og sjálfbærni í forgrunn og staðsetur rótgróið fyrirtæki í fremstu röð frumkvöðlafyrirtækja með nútímalegum hætti.“ Breki segir að innblástur nýs merkis hafi verið sóttur í hreyfingu og samstarf Orkuveitunnar við viðskiptavini sína og samstarfsaðila. Merkið byggi á sterkri arfleifð Orkuveitunnar en lögun merkisins vísi í eldri útgáfur merkja samsteypunnar. Nýtt merki og einkennislitur Orkuveitunnar.Orkuveitan Orkuveitan sé grunnkraftur og aflvaki sem sjái um að veita orku til metnaðarfullra viðskiptavina og samfélagsins alls. Nýtt merki sé táknmynd þessarar sífelldu hreyfingar. Akranes og Borgarbyggð fá að vera með Breki segir að lögformlegt heiti fyrirtækisins verði áfram Orkuveita Reykjavíkur en í öllu efni sem fer frá fyrirtækinu og í daglegu tali verði heitið Orkuveitan notað. Eignarhaldið á fyrirtækinu sé með þeim hætti að Akranes og Borgarbyggð séu í eigendahópi ásamt Reykjavík og því hafi þótt eðlilegt að skoða það. Orkuveitan sé enn fremur að þjónusta og í viðskiptum við fleiri sveitarfélög en Reykjavík. Enskt heiti félagsins verði áfram Reykjavík Energy. Horfa á árangur annarra „Í takt við nýjar stefnuáherslur til sjálfbærrar framtíðar fær Orkuveitan nýja ásýnd. Endurmörkun á vörumerkinu er byggð á nýrri stefnu Orkuveitunnar og er ætlað að endurspegla hana. Framtíðarhugsun, enn frekari áhersla á nýsköpun, sjálfbærni og samstarf. Allt eru þetta hlutir sem eru okkar ofarlega í huga en það eru líka viðskiptavinir okkar. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.Orkuveitan/OSSO Ný stefna gengur einfaldlega út á að við horfum á árangur annarra. Vegna þess að við viljum vera góður samstarfsaðili sem stuðlar að framgangi samfélaga. Okkar árangur er mældur í árangri annarra. Hvort sem það eru sveitarfélög, fyrirtæki, einstaklingar eða starfsfólk - allt sem við gerum er með hag viðskiptavina okkar að leiðarljósi,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar um breytingarnar.
Orkumál Auglýsinga- og markaðsmál Reykjavík Borgarbyggð Akranes Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira