Rauðar tölur um allt land Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2024 07:13 Höfuðborgarbúar vöknuðu upp við hvíta jörð í dag. Vísir/Vilhelm Lægðin sem liggur skammt suður af landinu kemur með milt loft og er hitastigið víða komið upp í núll til sjö stig núna í morgunsárið. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun.
Veðurstofan spáir því að það verði suðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu í dag, dálítil rigning eða súld með köflum og snjókoma til fjalla. Þó verður úrkomumeira suðaustanlands, en þurrt að kalla fyrir norðan. Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu þrjú til átta stig í dag. „Áfram suðaustanátt á morgun, 10-18 m/s. Lítilsháttar væta en bjart með köflum norðanlands. Bætir í úrkomu sunnanlands um kvöldið, hiti breytist lítið. Austan 10-18 m/s á miðvikudag, hvassast syðst. Rigning um landið sunnan- og austanvert en léttskýjað norðantil. Talsverð úrkoma sunnanlands um kvöldið. Áfram milt í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan og suðaustan 13-18 m/s og dálítil rigning sunnantil, hiti 2 til 7 stig, en bætir í úrkomu undir kvöld. Hægara, þurrt að kalla og heldur svalara norðan heiða. Á miðvikudag: Austan 10-18 m/s, hvassast syðst. Rigning sunnanlands, talsverð um kvöldið, en þurrt að mestu fyrir norðan. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast sunnantil. Á fimmtudag: Suðaustan 8-15 og rigning með köflum, einkum suðaustanlands en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 1 til 6 stig. Á föstudag: Suðaustlæg átt og dálítil rigning austantil en léttir til vestanlands. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austanátt og bjart með köflum en lítilsháttar rigning eða slydda austantil. Hiti nálægt frostmarki, en 0 til 5 stig sunnanlands. Á sunnudag: Útlit fyrir austlæga átt. Skýjað og dálítil rigning eða slydda sunnan- og austantil en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig en um eða undir frostmarki fyrir norðan.
Veður Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Sjá meira