Blindi krókódíllinn Albert fjarlægður úr sundlaug sinni Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2024 13:37 Hinn þrítugi Albert er sagður blindur og þjást af ýmsum heilsukvillum. AP/Umhverfis og dýravernd New York ríkis Lögregluþjónar í New York-ríki í Bandaríkjunum lögðu í vikunni hald á 340 kílóa krókódíl sem maður í ríkinu hélt ólögleg í bakgarði sínum. Maðurinn hafði útbúið sundlaug fyrir krókódílinn, sem heitir Albert, og sagður hafa leyft fólki og börnum að fara út í vatnið með dýrinu.
Albert er þrjátíu ára gamall og er sagður við slæma heilsu. Hann er meðal annars blindur og hefur verið sendur til manns sem hefur leyfi til að annast krókódíla, þar til varanleg lausn finnst, samkvæmt AP fréttaveitunni. Maðurinn sem átti Albert, heitir Tony Cavallaro, og hafði á árum áður leyfi til að eiga dýrið. Hann hafði grafið sundlaug í garðinum sínum fyrir krókódílinn, sem er um 3,4 metra langur, en yfirvöld komust að því árið 2021 að aðstæður í bakgarðinum stæðust ekki öryggisskilyrði samkvæmt reglum. Því var leyfi mannsins til að halda krókódílinn fellt úr gildi. Ekki var þó gripið til aðgerða til að fjarlægja dýrið fyrr en í vikunni, eftir að lögregluþjónar fengu ábendingar um að eigandi þess væri að ógna öryggi almennings. Cavallaro segist í samtali við AP ætla að berjast fyrir því að Albert verði skilað til hans. Hann segist hafa komið fram við dýrið eins og eigið barn og að engum hafi stafað ógn af honum.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Sjá meira