Lægð nálgast úr suðvestri og von á stórhríð norðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2024 07:13 Lægðin dýpkar ört í nótt og á morgun er útlit fyrir norðaustan storm á Vestfjörðum með talsverðri ofankomu. Vísir/Vilhelm Lægð nálgast nú landið úr suðvestri og má reikna með hægt vaxandi austan- og suðaustanátt. Það mun svo hlýna sunnanlands með rigningu eða slyddu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að víða verði tíu til átján metrar á sekúndu síðdegis og snjókomu með köflum um landið norðanvert. Undir kvöld lægir suðvestantil á landinu. „Í nótt dýpkar lægðin ört og á morgun er útlit fyrir norðaustan storm á Vestfjörðum með talsverðri ofankomu, sannkölluð stórhríð og ekkert ferðaveður. Annars staðar á Norður- og Norðvesturlandi verður einnig stíf norðaustanátt og slydda eða snjókoma, en sunnan- og austanlands verður vindur yfirleitt mun hægari og rigning eða slydda með köflum. Annað kvöld snýst í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm á landinu með talsverðri snjókomu um landið norðanvert, og ekki er útlit fyrir að veðrið gangi niður fyrr en aðfaranótt laugardags,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 10-18, en norðaustan 18-25 m/s norðvestanlands. Snjókoma eða slydda um landið norðanvert, en rigning eða slydda með köflum sunnan- og austantil. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar um kvöldið. Á föstudag: Norðan 15-23 og snjókoma, en úrkomulítið sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki, en mildara á Suðausturlandi. Fer að draga úr vindi undir kvöld. Á laugardag: Minnkandi norðlæg átt, 5-13 síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi, annars þurrt að mestu. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á sunnudag: Norðaustan og austan 5-13. Dálítil él og frost 1 til 9 stig, en snjókoma með köflum við suðurströndina og hiti kringum frostmark. Á mánudag: Norðlæg átt og él, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Frost 2 til 12 stig. Á þriðjudag: Norðaustanátt og snjókoma með köflum, en yfirleitt þurrt sunnanlands. Dregur úr frosti.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira