Veður

Kalt og bjart í dag en dá­lítill kaldi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Það verður fallegt veður næstu daga.
Það verður fallegt veður næstu daga. Vísir/Vilhelm

Bjart veður verður vestan- og sunnantil í dag en stöku él á norðan- og austanverðu landinu. Frost u allt land en hiti verður rétt yfir frostmarki sunnanlands. 

Þá verða norðaustan kaldi, 5-13 m/s, en allhvasst 13-18 m/s á Suðausturlandi. 

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar að svipað veður verði á morgun en aðeins hvassara. Í vindstrengjum á Suðrausturlandi má búast við snörpum vindhviðum, einkum í Öræfum og gæti orðið varasamt fyrir ökutæki, sem taka á sig mikinn vind. 

Fram til þriðjudags á veður að breytast lítið. Þá dregur úr vindi og líkur eru á dálitlum éljum um allt land. Áfram verður frekar kalt í veðri. 

Það er bjart og kalt í dag, einkum vestan- og sunnantil.Veðurstofa Íslands

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag, föstudag og laugardag: Norðaustan 10-18 m/s, hvassast suðaustantil á landinu. Él á norðan- og austanverðu landinu, en þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðaustanátt með éljum fyrir norðan- og austan, en léttskýjað sunnan heiða. Áfram fremur kalt í veðri.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×