Stjarnan fær máttarstólpa úr föllnu liði Selfoss Sindri Sverrisson skrifar 3. apríl 2024 14:00 Hans Jörgen Ólafsson er markahæstur Selfyssinga í vetur. @Stjarnan Handbolti Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur tryggt sér krafta unglingalandsliðsmannsins Hans Jörgens Ólafssonar sem kemur í Garðabæinn í sumar frá Selfossi, þar sem hann hefur ávallt spilað.
Hans er kröftug skytta og varnarmaður, sem skorað hefur 67 mörk fyrir Selfoss í vetur, í 21 leik. Hann er markahæsti leikmaður liðsins sem í gær féll niður í Grill 66-deildina, þegar ein umferð er eftir af deildarkeppninni. Stjörnumenn eru í 8. sæti Olís-deildarinnar og búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Þjálfari þeirra, Hrannar Guðmundsson, fagnar því að hafa nælt í Hans. „Ég er hrikalega ánægður með að hafa fengið Hans til okkar í Stjörnuna. Hans er mikil fyrirmynd fyrir okkar yngri leikmenn um hvernig á að æfa og leggur mikið á sig. Hans er mikil styrking fyrir okkur og verður hriklalega gaman að sjá Hans í Stjörnubúning næsta vetur,“ segir Hrannar í fréttatilkynningu Stjörnunnar. Stjörnumenn geta enn komist upp í 7. sæti Olís-deildarinnar með sigri gegn Víkingi í lokaumferðinni á föstudaginn, ef KA tapar gegn FH á útivelli, og þá myndu þeir mæta Val í 8-liða úrslitum. Annars mætir Stjarnan deildarmeisturum FH.
Olís-deild karla Stjarnan UMF Selfoss Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira