Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Jón Þór Stefánsson skrifar 17. apríl 2024 16:20 Árásin átti sér stað í húsi í Faxafeni, sem er á hægri hlið myndarinnar og endaði í öðrum enda götunnar, vinstra megin á myndinni. Vísir/Egill Bersi Torfason hlaut í síðasta mánuði tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tveggja stunguárása sem áttu sér stað um nýársnótt 2022.
Hann var annars vegar ákærður fyrir tilraun til manndráps og hins vegar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Honum var gefið að sök að leggja ítrekað til tveggja annarra manna með hníf í búk og útlimi. Fyrir vikið hlutu mennirnir tveir áverka víðsvegar um líkamann. Hjá öðrum þeirra var hending að ekki hafi farið verr, en hinn hlaut áverka sem „augljóslega“ hefði getað verið lífshættulegur. Í lýsingum á málsatvikum í dómnum segir að lögregla hafi fengið tilkynningu um stunguárás í Faxafeni klukkan fimm að morgni nýársdags 2022. Fram kom að stungumaðurinn væri flúinn af vettvangi. Hann var síðan handtekinn fyrir framan Subway í Faxafeni, en þá var hann á hlaupum undan hópi fólks. Í þessum hópi var annar hinna særðu sem sagði, á meðan lögreglan var að handtaka Bersa, að hann hefði stungið sig. Fram kemur að hann hafi verið stungusár á maga og að innyfli hans hafi lafað út. Hinn særði var fluttur á bráðamóttöku og gekkst undir aðgerð. Það var mat lækna að aðgerðinni lokinni að áverkar hans hefðu getað verið lífshættulegir, en hann hafi þó ekki verið í lífshættu. Stungumaðurinn og þolendurnir höfðu verið í gamlárspartýi á öðrum stað í Faxafeni. Fram kemur að þegar lögreglu bar að garði þar hafi sjúkraflutningamenn verið að hlúa að hinum manninum sem varð fyrir árásinni. Vitni á staðnum voru í nokkru uppnámi. Vera á salerni í aðdraganda árásarinnar Bersi krafðist sýknu, en játaði að hafa stungið mennina tvo. Hann vildi meina að um neyðarvörn hafi verið að ræða. Á meðal gagna málsins var vottorð sálfræðings sem sagði stungumanninn með einkenni áfallastreitu. Þeir sem glíma við slíkt bregðist oft við ógn með öðrum hætti en aðrir – með því að berjast, flýja eða frjósa. Fyrir dómi lýsti stungumaðurinn því að hann hefði farið í umrætt partý. Hann hafi verið þar í um það bil 45 mínútur þegar hann hafi farið á salernið. Einhverjir hefðu þá komið og „neglt á hurðina og verið með hamagang“. Hann hafi opnað hurðina og spurt hvort ekki væri allt í lagi, en þeir sem bönkuðu uppá brugðist illa við og verið með vesen. Þeir hafi sagt honum að sýna sér virðingu, þeir væru að halda partýið. Þá hafi hann farið út af salerninu og beðið þar fyrir utan, en þá hafi einn úr áðurnefndum hópi öskrað á hann. Partýhaldarinn hafi þá komið og spurt hvort það væri ekki allt í góðu. Bersi sagði svo vera, hann vildi bara skemmta sér. Samkvæmt framburði Bersa hélt þetta ástand áfram að stigmagnast, og það endað með því að honum hafi verið ýtt upp við vegg. „Viltu fokking deyja“ Á meðal gagna málsins var myndbandsupptaka. Samkvæmt dómnum verður af henni ráðið að áður en átökin áttu sér stað hafi annar þolendanna sagt við stungumannin: „Viltu fokking deyja“. Síðan hafi átök brotist út á milli þeirra tveggja, og hinn brotaþolinn síðan blandað sér í þau. Í dómnum segir að í myndskeiðinu megi sjá annan þolandann ýta stungumanninum upp við vegg, og hann svarað með því að slá til þolandans og þar á eftir stinga, eða gera tilraun til að stinga hann. Á einhverjum tímapunkti megi sjá báða þolendurna ráðast að Bersa. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði.Vísir/Vilhelm Fram kemur að í myndbandinu sjáist skýrt þegar annar þolandinn hafi tekið í hettu á úlpu stungumannsins. „Má ætla að það hafi takmarkað mjög sýn ákærða eins og ákærði hefur lýst,“ segir í dómnum. Þrátt fyrir það hélt hann áfram að slá frá sér. Bersi sagðist hafa verið mjög hræddur á þessari stundu og óttast að mennirnir tveir hafi ætlað að drepa hann. Hann hafi því verið að verja sig. Mennirnir tveir sögðu hins vegar að þeir hafi ekki áttað sig á því að stungumaðurinn væri með hníf fyrr en að atlögunni lokinni. Þá sáu þeir að þeir væru með áverka. Í dómnum segir að þessu loknu hafi stungumaðurinn verið sleginn, sparkað hafi verið í hann, og vökva úr glasi skvett yfir hann. Að lokum hefði annar hinna særðu tekið hann hálstaki í gólfinu og hvatt alla aðra til að róa sig. Það hafi verið endalok átakanna Hending að ekki fór verr Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að með háttsemi sinni hafi Bersi getað látið það sér í léttu rúmi liggja að skaði gæti hlotist af því að hann hafi sveiflað hnífnum líkt og hann gerði. Því teljist sannað að ásetningur hans hafi verið að ráðast á mennina, en ósannað að hann hafi ætlað að valda dauða. Niðurstaða dómsins var sú að ekki væri hægt að líta á háttsemi hans sem neyðarvörn. Hann féllst heldur ekki á að Bersi hefði verið í sérstöku ójafnvægi þegar hann framdi árásina þannig að hann teldist ekki sakhæfur. Bersi hefur áður hlotið dóma, fyrir fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar sinnar leit héraðsdómur bæði til þess og að í árásinni hefði Bersi beitt hættulegu vopni sem hann leyndi þolendunum tveimur. Þeir hafi því ekki átt neinn möguleika á að verjast árásinni, sem beindist að lífi og heilsu þeirra. „Hending ein réð því að afleiðingarnar urðu ekki enn alvarlegri,“ segir í dómnum, sem leit þó einnig til þess að árásin hafi átt sér stað eftir ertingu af hálfu þolendanna, og að Bersi hafi verið einn á móti tveimur. Þar að auki var litið til andlegs ástands hans. Líkt og áður segir hlaut Bersi tveggja ára fangelsisdóm. Þá er honum gert að greiða öðrum þolandanum rúmar 1,3 milljónir króna í miskabætur, og hinum rétt rúma milljón. Annar sakarkostnaður deildist á hann og ríkissjóð.
Dómsmál Reykjavík Áramót Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Sjá meira