Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO BYKO 30. apríl 2024 12:36 Svanfríður Hallgrímsdóttir er landslagsráðgjafi og veitir viðskiptavinum BYKO ráðgjöf varðandi útfærslu á palli og girðingum með efni og vörum frá BYKO. Viðskiptavinum BYKO gefst kostur á faglegri pallaráðgjöf auk ráðgjafar þegar kemur að skipulagi garðsins almennt.
Það er Svanfríður Hallgrímsdóttir, landslagsráðgjafi, sem sér um að veita viðskiptavinum ráðgjöf en tilgangur hennar er að auðvelda fólki útfærslu á palli og girðingum með efni og vörum frá BYKO. „Óskir viðskiptavina okkar eru mjög mismunandi,“ segir Svanfríður. „Oft erum við með óhannað svæði sem við skipuleggjum í sameiningu með tilliti til helstu óska garðeiganda. Aðrir eru með sólpalla í garðinum en langar að gera einhverjar skemmtilegar breytingar og viðbætur. Þá kem ég þeim til aðstoðar með að ná skemmtilegri tengingu á milli eldri pallsins og þess nýja. Saman sjáum við hugmyndirnar verða til í þrívídd á skemmtilegu dvalarsvæði.“ Tíminn hjá Svanfríði kostar 9.995 kr. en viðskiptavinir fá þá upphæð til baka í formi inneignar upp í pallaefni hjá BYKO. Hún segir tískusveiflur vera í pallagerð þegar kemur að hönnun og efnisvali sem hafi áhrif á óskalista viðskiptavina en ekki síður á efnisval á pöllum og skjólgirðingum. „Þau sem eru að byggja nýja palla í dag verða fyrir meiri áhrifum af þeim tískustraumum sem eru í gangi hverju sinni.“ Ljósir og náttúrulegir tónar hafa verið vinsælir síðustu árin að hennar sögn. „Spa svæðin eru mjög vinsæl á Íslandi í dag. Þá er fólk að óska eftir aðstoð við að koma fyrir sauna, sturtu, heitum og köldum potti. Dvalarsvæði með léttri yfirbyggingu að hluta er alltaf vinsæl og einnig flott grillaðstaða. Sjálfri finnst mér alltaf skemmtilegast að sjá vel heppnaða blöndun. Það er auðvelt að poppa upp dvalarsvæðin með flottum aukahlutum eins og lýsingu, garðhúsgögnum, blómapottum og skrauti sem fæst í BYKO.“ Þegar búið er að panta tíma í ráðgjöf þarf að senda myndir og önnur gögn á pallaradgjof@byko.is. „Á heimasíðu BYKO er farið yfir þau helstu gögn sem viðskiptavinir þurfa að skila inn fyrir fundinn okkar. Helstu gögn eru 1:100 málsett grunnmynd og 1:500 málsett afstöðumynd ásamt helstu óskum viðskiptavinar á svæðinu sínu og einnig er gott að fá nokkrar myndir af svæðinu.“ Innifalið í pakkanum er 45 mínútna viðtal við Svanfríði, hvort sem er í verslun BYKO í Breidd eða með fjarfundi í gegnum Teams. „Samdægurs skila ég viðskiptavinum myndum af hugmyndavinnu og innan sjö vinnudaga fá viðskiptavinir senda málsetta hugmyndabók og það eru þau gögn sem strákarnir í timburdeildinni vinna úr og gefa tilboð í efnið.“ Nánari upplýsingar á vef BYKO.
Garðyrkja Hús og heimili Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira