Gaman að farða dansarana
Dýrleif Sveinsdóttir er enginn nýgræðingur í förðun. Tískuvikurnar eru henni vel kunnugar víða um heim og hefur hún farðað fyrir tískuhús á borð við Vivienne Westwood, GANNI, Rotate, Baum und Pferdgarten, Stine Goya og Henrik Vibskov.
„Ég hef verið svo lánsöm á mínum förðunarárum og fengið að vinna við alls kyns mismunandi verkefni, tískusýningar, auglýsingar, tónlistarmyndbönd, editorials, sjónvarp og tónleika.
Ég var sömuleiðis ein af þeim sem sá um förðun í þáttunum Allir geta dansað sem voru sýndir á Stöð 2 en það var ótrúlega skemmtilegt verkefni, mikil förðun og mikið glimmer. Ég fékk líka þann heiður að sminka fyrir Of Monsters And Men tónlistarmyndband sem var mjög skapandi og skemmtilegt.“
Mikið stress baksviðs
Dýrleif segist þó oftast hafa tekið að sér förðun fyrir tískusýningar og þrífst vel í hraðanum sem því fylgir.
„Það er oft mikið stress baksviðs á tískusýningum. Öll módelin þurfa hár og fjölbreytta förðun. Það sem er hvað erfiðast oft er að gera förðun sem má helst ekki sjást. Ég elska hraðann, pressuna og stressið.“
Dýrleif hefur sömuleiðis verið fastagestur á tískuvikunni í Kaupmannahöfn frá árinu 2012 að undanskildum tveimur fæðingarorlofshléum.
„Eftirminnilegasta sýningin er án efa Vivienne Westwood, það var frábær lífsreynsla. Vivienne sjálf var þó því miður ekki á staðnum. Ég hef farðað fyrir ótal tískusýningar hér heima líka, sem dæmi Reykjavík Fashion Festival og fleira með Fríðu Maríu sminku. Fríða María sá alltaf um tískusýningar LHÍ og þegar að hún hætti þá tók ég við förðuninni.“
Unnið með LHÍ í mörg ár
Dýrleif sá um förðunina fyrir útskriftarnema fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands á dögunum í samvinnu við snyrtivörumerkið GOSH Copenhagen.
„Það er ótrúlega gaman að vinna með Listaháskólanum, sérstaklega þar sem ég hef unnið með þeim í svo mörg ár. Það er sýning á tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem heitir Designers Nest og er er einhvers konar keppni á milli listaháskóla á Norðurlöndum.
Ég farðaði oft fyrir þá sýningu sem var svo gaman því það var alltaf nemandi frá LHÍ þar. Þá var ég oft búin að sminka fyrir viðkomandi á annars árs sýningunni þeirra, útskriftarsýningu og svo á Designers Nest,“ segir Dýrleif og bætir við að það sé kærkomið að mynda góð og traust sambönd.
Getur verið erfitt að farða alla eins
Undirbúningur er mikill fyrir svona sýningu að sögn Dýrleifar.
„Ég hef alltaf fengið flott merki með mér í lið, í ár var það Gosh Copenhagen, og við setjum saman teymi af flinkum förðunarfræðingum.
Svo fæ ég sent svokallað moodboard frá nemendum sem sýnir hvaða áherslur þau vilja og ég hanna svo lúkkin út frá því. Ég fæ auðvitað mestan innblástur frá því en síðan koma ýmsar hugmyndir og möguleikarnir eru endalausir. Í ár var áherslan lögð á glansandi fallega húð með áherslu undir augum.
Á sýningardegi mætum við snemma til að setja allt upp en það er mikilvægt að hafa góðan tíma þar sem þetta eru mörg módel.“
Hún segir að það hljómi kannski auðvelt að setja sömu förðun á alla en það geti þó verið mjög krefjandi.
„Módelin eru auðvitað öll með mismunandi lögun á augum og sömuleiðis með mismunandi húð og andlitsbyggingu.“
Hér má sjá nokkrar vel valdar baksviðs myndir frá tískusýningunni:














