Skoðun

Fá allir sama or­lof?

Sigríður Auðunsdóttir skrifar

Frjósemisvandi er eitthvað sem 1 af hverjum 6 pörum glímir við og fer sú tala hækkandi. Fyrir aðra er erfitt að setja sig í stöðu þeirra sem standa í þessum bardaga. Þessi vandi reynir mikið á andlega fyrir fólk en ferlið felur í sér óvissu, streitu og kvíða svo eitthvað sé nefnt. Það er erfitt að fá síendurtekið neikvætt próf, sprauta sig með alls konar hormónum, fara endurtekið í uppsetningu á fósturvísum sem ekki halda sér eða þú missir fóstrið eftir einhverjar vikur jafnvel.

Hér á landi er staðan sú að einungis er eitt starfandi fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem ekki nær að leysa vanda þeirra sem glíma við flókinn frjósemisvanda. Fólki í þeirri stöðu leitar því út fyrir landsteinana þar sem það vonast til að fá lausn sinna mála. Þetta hefur í för sér með dágóða fjarveru úr vinnu en fjarvera vegna glasameðferðar getur tekið allt upp í 2 vikur. Fyrir þá einstaklinga sem eru í þeirri stöðu að þurfa að taka þessa daga af sumarleyfinu sínu skerðir þetta heilmikið rétt þeirra til orlofs sem fólk sem ekki eru í þessum vanda fær.

Veit ég um dæmi þess að einstaklingur hafi þurft að taka 25 daga af orlofinu sínu á 2 ára tímabili til að geta farið í þá vegferð sem fylgir því að reyna að eignast barn. Því eins og kom fram hér fyrr í greininni þarf oft á tíðum meira en eina og fleiri en tvær meðferðir til að ósk fólk um að verða foreldrar verði að veruleika. Það má því spyrja sig, var þetta orlof fyrir manneskjuna? Nei alls ekki því eins og fólk segir sem hefur þurft að ganga í gegnum þetta þá getur vegferðin að barneign orðið kvíðvænleg og tekur gífurlega á andlega.

Svo við setjum þetta í betra samhengi, fyrir fólk sem á 30 daga orlof eru 25 dagar á tveimur árum skerðing um u.þ.b. ⅓ af orlofi manneskjunar á hvoru ári og meira fyrir þá sem eiga lágmarks orlof 24 daga á ári.

Annað dæmi sem ég veit um er manneskja sem notaði meira en helminginn af orlofi sínu til að fara í meðferðir. Einnig eru dæmi þess að margir þurfi að senda makann einan því þeir geta hvorki tekið meira orlof eða frí frá vinnu eða hreinlega hafa ekki efni á því.

Ég skora því á öll stéttarfélög að setja klausuna um 15 daga fjarveru frá vinnu vegna tæknifrjóvgunar í kjarasamninga sína til allir eigi sama rétt á orlofi.

Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtaka um ófrjósemi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×