Kristall hetjan en fagnaði ósæmilega og fékk rautt Sindri Sverrisson skrifar 11. maí 2024 14:26 Daníel Leó Grétarsson, Atli Barkarson og Kristall Máni Ingason fögnuðu sæti í úrvalsdeild á dögunum og eru nú svo gott sem búnir að vinna 1. deildina. @sonderjyskefodbold/Nicolai Berthelsen Kristall Máni Ingason skoraði sigurmark úr víti, rétt fyrir lok leiks, sem svo gott sem tryggði Sönderjyske titilinn í dönsku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Kristall skoraði markið á 88. mínútu en ákvað að fagna því með því fyrir framan stuðningsmenn AaB sem fylgt höfðu liðinu í þennan útileik, í von um að geta fagnað sæti í úrvalsdeild. Dómarinn gaf Kristal gult spjald fyrir þetta og í uppbótartíma fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt, fyrir tæklingu, og er því kominn í leikbann. SönderjyskE hafði þegar tryggt sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni en með sigrinum í dag, 1-0 gegn AaB, er liðið jafnframt nánast endanlega búið að tryggja sér efsta sætið í B-deildinni, þó að enn séu þrír leikir eftir. Hinn 17 ára Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn fyrir AaB en liðið þarf nú enn að bíða eftir að tryggja sér formlega farseðilinn upp. AaB er með 56 stig í 2. sæti og gott forskot á næstu lið. SönderjyskE er nú komið með 65 stig og markatala liðsins er 19 mörkum betri en hjá AaB, svo það þarf ansi mikið að ganga á til að SönderjyskE vinni ekki deildina. Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn í vörn SönderjyskE í dag og hefur liðið haldið marki sínu hreinu í fjórum af síðustu sex leikjum sínum með Daníel í vörninni. Atli Barkarson hefur hins vegar misst af síðustu leikjum vegna meiðsla.
Danski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira