Hólmbert upp í efstu deild en Ísak gæti enn farið beint upp Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2024 20:25 Ísak Bergmann Jóhannesson lék síðasta stundarfjórðunginn gegn Holstein Kiel í kvöld. Getty/Stefan Brauer Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf eiga enn möguleika á því að fara beint upp í þýsku úrvalsdeildina eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli gegn toppliði Holstein Kiel í kvöld.
Düsseldorf og Kiel voru í harðri baráttu á toppi þýsku B-deildarinnar, ásamt St. Pauli sem situr í öðru sæti. Fyrir leik kvöldsins sat Kiel á toppnum með 64 stig, St. Pauli var með 63 stig og Düsseldorf með 59 þegar tvær umferðir voru eftir. Tvö lið fara beint upp um deild, en þriðja sætið þarf að fara í gegnum umspil. Það var því ljóst að tap í kvöld myndi þýða að Ísak og félagar ættu ekki lengur möguleika á því að fara beint upp. Ísak hóf leik á varamannabekk Düsseldorf í kvöld, en Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahópi Holstein Kiel. Heimamenn í Kiel tóku forystuna strax á annarri mínútu áður en gestirnir jöfnuðu metin úr vítaspyrnu á 70. mínútu, stuttu áður en Ísak kom inn af bekknum. Reyndust það einu mörk leiksins og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Holstein Kiel trónir því enn á toppi deildarinnar, nú með 65 stig þegar liðið á einn leik eftir, og er öruggt um sæti í efstu deild. Düsseldorf situr hins vegar enn í þriðja sæti, nú með 60 stig, þremur stigum á eftir St. Pauli sem á leik til góða.
Þýski boltinn Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Elín Klara sænskur meistari Handbolti Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira