Fótbolti

Börsungar sektaðir fyrir sam­skipti við Alvarez

Andri Broddason skrifar
Barcelona reyndi hvað félagið gat til að fá Julian Alvarez en allt kom fyrir ekki.
Barcelona reyndi hvað félagið gat til að fá Julian Alvarez en allt kom fyrir ekki. Gongora/Getty Images

Spænska úrvalsdeildin í fótbolta hefur sektað félagið um 602 evrur eða um 82.000 milljónir króna fyrir hvernig félagið hafði samband við sóknarmanninn Julian Alvarez, leikmann Atletico Madrid.

Sektin er fyrir að hafa samband persónulega við Alvarez án þess að láta Atletico Madrid formlega vita skriflega fyrst. Alvarez er samningsbundinn Atletico Madrid til ársins 2030 en hann tjáði í sumar að hann vildi fara frá félaginu.

Atletico Madrid vildi ekki missa einn af stjörnuleikmönnunum sínum og því vildi félagið ekki selja hann. Barcelona varð sektað eftir kvörtun frá Atletico til spænsku úrvalsdeildarinnar en félagið kvartaði einnig til FIFA. Alþjóða knattspyrnusambandið sagðist ekki vera með neinn rétt á því að refsa Barcelona fyrir atvikið.

Alvarez hefur ekki verið vinsæll hjá stuðningsmönnum Atletico eftir að hann tjáði þeim að hann vildi fara frá félaginu. Hann náði þó að heilla nokkra stuðningsmenn Atletico til baka þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Deportivo La Coruna. Í viðtali eftir leikinn bað hann stuðningsmenn afsökunar.

Í 115 leikjum fyrir Atletico Madrid hefur Alvarez skorað 51 mark og hefur því verið duglegur í markaskorun hjá félaginu. Hann kom til spænska félagsins frá Manchester City þar sem hann var óánægður með að fá ekki að spila nógu mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×