Fjallað var um forritið í fréttum Vísis fyrr á árinu. Þar kom fram að hjúkrunarfræðingum tókst að minnka skriffinnsku um margar klukkustundir með notkun smáforritsins. Í forritinu eru forskráð verkefni sem starfsfólk hakar við að loknu verki.
Á hjúkrunarheimilum er skráning meðferðar í sjúkraskrá á ábyrgð hjúkrunarfræðinga, en með forritinu getur ófaglært starfsfólk skráð inn verkþætti sem vistast beint í Sögu þar sem hjúkrunarfræðingur hefur yfirsýn yfir meðferð íbúa. Með því að nota forritið er þannig hægt að spara hjúkrunarfræðingum mikla vinnu og hægt að nýta tíma þeirra í annað.
Niðurstöður rannsóknar Önnu Bjarkar sýndu að nettó ábati Iðunnar var 663.624.945 krónur eða um 663 milljónir á landsvísu. Til að meta ábatann af innleiðingu Iðunnar framkvæmdi Anna kostnaðarábatagreiningu ásamt næmnigreiningu á innleiðingunni.
Þrír verkþættir kannaðir
Ábatinn var metinn út frá mælingum og áætlunum á tíma þriggja verkþátta með og án Iðunnar. Þeir voru uppfletting meðferðarsviðs, uppfletting og framkvæmd símtals til aðstandenda og sáramyndatökur.
Vinnunni við verkþættina var síðan umbreytt í peningalegt virði út frá launum þess sem framkvæmdi verkið. Samkvæmt greiningu er áætlaður tímasparnaður við upplýsingafundi samkvæmt deildarstjórum hjúkrunarheimila sem þegar hafa innleitt Iðunni 30 mínútur fyrir sjö til níu manns.

Tímataka fyrir uppflettingu meðferðastigs sýndi að hún tók að jafnaði eina mínútu og 34 sekúndur án Iðunnar en 10 sekúndur með Iðunni. Tímataka á uppflettingu símanúmers og framkvæmd símtals án Iðunnar var ein mínúta og 58 sekúndur en 20 sekúndur með Iðunni. Tími sem fór í myndatökur á sárum mældist um það bil sex mínútur án Iðunnar en 20 sekúndur með Iðunni.
Samkvæmt rannsókn Önnu yrði árlegur ábati af tímasparnaði við framkvæmd þessa verka 691.547.362 krónur ef Iðunn yrði innleidd í öllum hjúkrunarrýmum landsins, áður en tekið er tillit til kostnaðar. Ef það er reiknað, með sömu forsendum fyrir hundrað manna hjúkrunarheimili, sýndu útreikningar hennar ábata upp á um 24 milljónir árlega, eða nákvæmlega 24.446.708 krónur.