Með hollustu að leiðarljósi Hreppamjólk 2. ágúst 2024 13:20 Skyrdrykkurinn er nýjasta afurð Hreppamjólkur. Hreppamjólk Hreppamjólk hefur nú komið með nýja skyrdrykki á markaðinn sem eru fáanlegir í fjórum ljúffengum bragðtegundum: hreinn, hindberja, karamellu og banana.
Þessir nýju drykkir eru nú þegar til sölu í verslunum Bónus og Hagkaupa og eru ætlaðir til að mæta þörfum neytenda sem leita eftir heilbrigðum og náttúrulegum valkostum. Berglind Bjarnadóttir, Margrét Hrund Arnarsdóttir og Arnar Bjarni Eiríksson.Hreppamjólk Fjölskyldan á bak við Hreppamjólk Hreppamjólk er fjölskyldufyrirtæki þar sem öll fjölskyldan leggur hönd á plóg. Það var stofnað með það að markmiði að bjóða neytendum hágæða mjólkurvörur beint frá Fjölskyldubúinu. Fjölskyldan er stolt af því að viðhalda hefðbundnum framleiðsluaðferðum þar sem áhersla er lögð á hollustu og gæði. Allar vörur Hreppamjólkur eru ófitusprengdar og mjólkin kemur beint frá Fjölskyldubúinu sem tryggir rekjanleika og ferskleika. Uppspretta Hreppa Skyrdrykkjanna Markmið okkar hefur alltaf verið að vinna vörurnar sem minnst og höfum við fundið frá viðskiptavinum okkar að það sé aukin eftirspurn eftir vörum án viðbætts sykurs. Þróun hófst síðasta sumar og ferlið og tilraunir hafa skilað sér í hollum og bragðgóðum skyrdrykkjum. Mjólkin sem notuð er í drykkinn er fitumeiri en hefðbundin mjólk í verslunum, þar sem við notum hana nánast beint af kúnni.Hreppamjólk Sérstaða vörunnar Skyrdrykkir Hreppamjólkur eru sérstakir vegna ófitusprengdu mjólkurinnar, sem rannsóknir hafa sýnt að geti verið betri fyrir fólk með laktósaóþol. Með því að fitusprengja ekki mjólkina fáum við meira bragð og rjómakenndari áferð. Einnig er fituinnihald hennar aðeins breytilegt eftir árstíðum. Mjólkin okkar er einnig fitumeiri en hefðbundin mjólk í verslunum, þar sem við notum hana nánast beint af kúnni. Vörurnar innihalda engan viðbættan sykur eða sætuefni, sem gerir þær að heilbrigðum valkosti fyrir alla aldurshópa. Framtíðaráform Skyrdrykkirnir eru til sölu í verslunum Bónus og Hagkaupa og vonumst við til að ná til fleiri verslana í framtíðinni, jafnvel erlendis. Ísland er hinn fullkomni tilraunamarkaður fyrir þróun nýrra heilsusamlegra mjólkurafurða. Þessir nýju drykkir eru nú þegar til sölu í verslunum Bónus og Hagkaupa og eru ætlaðir til að mæta þörfum neytenda sem leita eftir heilbrigðum og náttúrulegum valkostum.Hreppamjólk Með þessum nýju drykkjum erum við að auka fjölbreytni á mjólkurmarkaði og bjóða upp á heilsusamlegar og náttúrulegar vörur fyrir alla eins nálægt upprunanum og mögulegt er með fullkomnum rekjanleika. Skyrdrykkirnir okkar eru fullkomnir fyrir hraðan lífsstíl samtímans og bjóða upp á ljúffengt og næringarríkt millimál án viðbætts sykurs hvenær sem er dagsins. Tilvalið fyrir ungabörn, sem nesti í skólann, ræktina, golfið eða hvar svo sem er þörf á hollu næringarríku millimáli.
Landbúnaður Matur Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira