Spánverjar í undanúrslit eftir mikla spennu og framlengingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. ágúst 2024 09:35 Yehia Elderaa átti góðan leik fyrir Egyptaland gegn Spáni en það dugði ekki til. getty/Alex Davidson Framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit í fyrsta leik átta liða úrslitanna í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París. Spánverjar unnu þá Egypta, 29-28.
Hægri hornamaðurinn Aleix Gómez skoraði sigurmark Spánar úr vítakasti þegar 25 sekúndur voru eftir. Egyptaland fékk tækifæri til að jafna í lokasókn sinni en tókst það ekki. Egyptar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum að honum loknum, 8-12. Spánverjar tóku við sér í seinni hálfleik en áhlaupið virtist ætla að koma of seint. Gómez jafnaði loks í 24-24 með marki úr víti en Seif Elderaa kom Egyptum aftur yfir, 24-25. Ian Tarrafeta tryggði Spánverjum svo framlengingu þegar hann jafnaði í 25-25 þegar hálf mínúta var eftir. Í framlengingunni var spænska liðið með frumkvæðið og alltaf á undan að skora. Gómez kom Spáni í 28-27 en Yehia Elderaa jafnaði í 28-28. Spánverjar fóru svo í sókn og Alex Dujshebaev fiskaði víti sem Gómez skoraði sigurmarkið úr, 29-28. Gómez skoraði átta mörk úr átta skotum og Tarrafeta var með sex mörk. Yehia Elderaa skoraði átta mörk fyrir Egyptaland og Seif Eldeera sex. Í undanúrslitunum mætir Spánn sigurvegaranum úr leik Frakklands og Þýskalands sem hefst klukkan 11:30 á eftir.
Handbolti Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira