Óskar Hrafn tekur strax við KR Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2024 15:10 Óskar Hrafn Þorvaldsson stýrir KR í fyrsta sinn gegn Vestra á laugardaginn. vísir/hulda margrét Enn og aftur hafa orðið vendingar á Meistaravöllum því Óskar Hrafn Þorvaldsson er tekinn við þjálfun karlaliðs KR í fótbolta.
Fótbolti.net greinir frá þessu í dag. Í byrjun þessa mánaðar var greint frá því að Óskar tæki við KR eftir tímabilið. Fram að því yrði hann aðstoðarmaður Pálma Rafns Pálmasonar sem hefur stýrt KR síðan Gregg Ryder var látinn fara í júní. Pálmi og Óskar voru saman á hliðarlínunni þegar KR vann FH, 1-0, á mánudaginn. Það var fyrsti sigur KR-inga frá 20. maí og fyrsti heimasigur þeirra á tímabilinu. Óskar sneri aftur til KR í sumar eftir stutt stopp hjá Haugesund í Noregi. Fyrst í stað var hann í hlutverki ráðgjafa hjá knattspyrnudeild KR og svo var hann ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Nú er hann hins vegar orðinn þjálfari og stýrir KR í fyrsta sinn gegn Vestra á Ísafirði á laugardaginn. Óskar var áður þjálfari Gróttu, og kom liðinu upp um tvær deildir á tveimur árum, og Breiðabliks sem hann gerði að Íslandsmeisturum 2022 og kom í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í fyrra. KR er í 9. sæti Bestu deildarinnar með átján stig eftir sautján leiki.
Besta deild karla KR Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Handbolti Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Handbolti Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Körfubolti Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Sjá meira