Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2024 07:54 Arnhildur Pálmadóttir er arkitekt, stofnandi og listrænn stjórnandi Hraunmyndana. Stjr Verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025.
Frá þessu segir á vef stjórnarráðsins en álls bárust tólf tillögur að sýningu í opnu kalli sem auglýst var í lok apríl af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Þar segir að fjórar tillögur hafi verið valdar til frekari kynninga fyrir stýrihóp verkefnisins sem sá svo um að valið. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr með opnu kalli. Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr er haldinn annað hvert ár, á móti tvíæringi í myndlist sem Ísland hefur tekið þátt í frá árinu 1960. Fram kemur að í verkefninu Hraunmyndanir (e. Lavaforming) sé sögð saga framtíðarsamfélags sem þrói framsæknar lausnir í mannvirkjagerð. Hraunrennsli sé beislað, nýtt sem byggingarefni og takist með því að umbreyta staðbundinni ógn í auðlind. Aldís Pálsdóttir Haft er eftir Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt, stofnanda og listrænum stjórnanda Hraunmyndana, að á tímum Snorra Sturlusonar, þegar síðast hafi gosið á Reykjanesi hafi eldgos verið framandi viðburður. „Í okkar sögu árið 2150 höfum við beislað hraunrennslið líkt og við gerðum með gufuaflið á 20. öld. Við vörðum söguna með atburðum sem höfðu áhrif á þróun og tækni en markmið hennar er að sýna að arkitektúr getur verið krafturinn sem endurhugsar og mótar nýja framtíð. Hraunflæði getur innihaldið nóg byggingarefni fyrir grunnstoðir heillrar borgar sem rís á nokkrum vikum án skaðlegrar námuvinnslu og óendurnýtanlegrar orkuöflunar,“ segir Arnhildur. Tilgátuverkefni framtíðarinnar Í tilkynningunni segir að arkitektastofan s.ap arkitektar sé þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar. „Arnhildur Pálmadóttir er stofnandi og annar eigandi s.ap arkitekta sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrás í byggingariðnaði ásamt því að vera listrænn stjórnandi Hraunmyndana. Hún er þekkt fyrir að nálgast verkefni með hugarfari frumkvöðuls og þverfaglegri nálgun. Arnhildur hefur skrifað greinar og texta sem tengjast arkitektúr, nýsköpun, tækni og sjálfbærni í hönnun og mannvirkjagerð auk þess að halda fyrirlestra um efnið. Í verkefninu Hraunmyndanir (e. Lavaforming) er sögð saga framtíðarsamfélags sem þróar framsæknar lausnir í mannvirkjagerð.Stjr Arnhildur er einn af eigendum dansk-íslenska arkitekta- og nýsköpunarfyrirtækisins Lendager, sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrás í mannvirkjagerð. Arnhildur er tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir þverfaglega nálgun í sinni vinnu og áherslu á endurvinnslu byggingarefnis. Arnhildur mun ásamt teymi s.ap arkitekta og hóp sérfræðinga og þverfaglegra samstarfsaðila sýna Hraunmyndanir (e.Lavaforming) í Feneyjum 2025 fyrir Íslands hönd.“ Áræðin og ögrandi Í rökstuðningi stýrihóps sem sá um valið á verkefninu segir að sýningartillagan Lavaforming sé bæði áræðin og ögrandi. „Hún hefur alla burði til þess að vekja athygli á sérstöðu Íslands og hlutverki og mikilvægi arkitektúrs á tímum óvissu og áskorana með eftirminnilegum hætti. Sýningin miðlar sögu, samtíð og framtíð lands í stöðugri mótun – og hugkvæmni fólks sem sífellt þarf að aðlaga sig krefjandi aðstæðum. Hugmyndin skapar umræðu um mikilvægi nýsköpunarviljans og ímyndunaraflsins fyrir þróun samfélaga og virði þess að vísindi og listi vinni saman.“ Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í nítjánda sinn dagana 10. maí til 23. nóvember 2025, með foropnun 8. til 9. maí.Tvíæringurinn gegnir lykilhlutverki við að móta og dýpka umræðu um arkitektúr um allan heim og þar koma saman lykilaðilar sem vinna að lausnum á brýnustu áskorunum samtímans – hvernig við byggjum og þróum samfélög á sjálfbæran hátt. Yfirskrift tvíæringsins 2025 er Intelligens. Natural. Artificial. Collective og með sýningarstjórn fer arkitektinn og verkfræðingurinn Carlo Ratti. Stýrihópur Feneyjatvíærings í arkitektúrs 2025: Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri og formaður stýrihóps fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Massimo Santanicchia, arkitekt, prófessor og deildarforseti í arkitektúr við LHÍ fyrir hönd Listaháskóla Íslands, Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, Teiknistofan Stika fyrir hönd Arkitektafélags Íslands, Daníel Jakobsson, landslagsarkitekt, Landslag fyrir hönd Félags íslenskra landslagsarkitekta, Silja Ósk Leifsdóttir, innanhússarkitekt, Nordic Office of Architecture fyrir hönd Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, Sigurður Einarsson, arkitekt og hönnunarstjóri, Batteríið fyrir hönd SAMARK Kristjana Rós Guðjohnsen, fagstjóri lista og skapandi greina fyrir hönd Íslandsstofu, Kristrún Heiða Hauksdóttir, sérfræðingur fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Arkitektúr Feneyjatvíæringurinn Menning Mest lesið Lifa hægara lífi í New York en á Íslandi Lífið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars Lífið Nammimaðurinn er allur Lífið Fréttatía vikunnar: Bubbi, Airwaves og kosningar Lífið Málningartrönur á miðri götu Berlínar breyttu gangi sögunnar Lífið Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið „Sigmundur Davíð gerði ekki shit þegar hann var forsætisráðherra“ Lífið Fleiri fréttir Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira