Fótbolti

Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þórður Jóns­son, Sveinn Jóns­son, Heim­ir Guðjóns­son, Ársæll Kjart­ans­son, Gísli Þorkels­son, Þor­geir Guðmunds­son og Gunn­ar Felix­son sneru aftur á fornar slóðir í dag.
Þórður Jóns­son, Sveinn Jóns­son, Heim­ir Guðjóns­son, Ársæll Kjart­ans­son, Gísli Þorkels­son, Þor­geir Guðmunds­son og Gunn­ar Felix­son sneru aftur á fornar slóðir í dag. Mynd/Aðsend

Sjö leikmenn úr liði KR sem mætti Liverpool í Evrópukeppni meistaraliða árið 1964 sneru aftur á Anfield, heimavöll enska liðsins, í dag. Þeir voru heiðraðir fyrir leik Liverpool við Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.

Leikirnir milli Liverpool og KR 1964 voru sögulegir fyrir bæði lið. Þau voru að taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Þess var minnst í dag, að því tilefni að 60 ár eru frá frumraun beggja.

Leik­menn KR sem eru samankomnir á Anfield eru þeir Þórður Jóns­son, Sveinn Jóns­son, Heim­ir Guðjóns­son, Ársæll Kjart­ans­son, Gísli Þorkels­son, Þor­geir Guðmunds­son og Gunn­ar Felix­son.

Þeir eru á myndinni ásamt fjórum leikmönnum úr liði Liverpool.

Liðin mættust fyrst á Laugardalsvelli fyrir framan rúmlega tíu þúsund manns í ágúst 1964 þar sem Liverpool vann 5-0 sigur og mánuði síðar vann enska liðið 6-1 þar sem Gunnar Felixson skoraði mark KR.

Þeir Þórður og Þorgeir voru til viðtals á Stöð 2 í vikunni vegna áfangans og sagði Þorgeir um stemninguna þegar Gunnar skoraði markið: 

„Ég man það þegar Gunni Fel skoraði, þá öskruðu þeir hærra og meira en þegar Púllararnir skoruðu. Þeir kölluðu þá: Reykjavík, Reykjavík!“ sagði Þorgeir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×