Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Sany 25. september 2024 13:47 Kínverski þungavinnuvélaframleiðandinn Sany er leiðandi í framleiðslu á umhverfisvænum þungavinnuvélum og þungaflutningabílum. Á rúmu ári hafa selst yfir 40 vélar og tæki hér á landi og því ljóst að markaðurinn hefur tekið vel á móti Sany. Fyrir rúmu ári síðan hóf Elfoss ehf. innflutning á vinnuvélum frá Sany sem er kínverskt fyrirtæki og einn stærsti og virtasti þungavinnuvélaframleiðandi heims auk þess að vera leiðandi í framleiðslu á umhverfisvænum þungavinnuvélum og þungaflutningabílum.
SANY hefur náð mjög góðum árangri með gæði tækja og framleiðir tæki með allt að fimm ára og/eða 10.000 vinnustunda ábyrgð sem greinir fyrirtækið frá samkeppnisaðilum sínum. „Viðtökurnar hafa verið frábærar en á rúmu ári höfum við selt yfir 40 tæki og vélar sem er skýrt merki um að Íslendingar eru að taka vel á móti Sany,“ segir Bóas Eðvaldsson, framkvæmdastjóri SANY á Íslandi. „Fyrir utan ábyrgðarhlutann, sem greinir SANY frá samkeppnisaðilum sínum, liggur styrkur SANY í gæðum og stuttum afgreiðslutíma á varahlutum og góðu aðgengi að þjónustu með vörulager í Svíþjóð.“ SANY hóf framleiðslu árið 1986 og fagnar því bráðum 40 ára afmæli. „Umsvif fyrirtækisins á heimsvísu hefur vaxið jafnt og þétt á þessu tímabili og í dag knýja öflugar vélar frá SANY fjölbreytt byggingarverkefni um allan heim,“ bætir Bóas við. Mjög fjölbreyttur tækjafloti Helstu viðskiptavinir SANY eru verktakar, bæði stórir og smáir, bændur og svo einstaklingar. „Markaðurinn hefur tekið mjög vel í tækin okkar og viðskiptavinir eru mjög ánægðir með vélarnar. Við bjóðum meðal annars upp á gröfur, hjólaskóflur, skotbómulyftara, námutrukka rafmagns vörubíla, rafmagnslyftara, krana af öllum stærðum á hjólum og beltum, rafmagns gámalyftara af öllum stærðum, vindmyllur, sólarpanela og margt fleira. Einnig bjóðum við upp á eigin skóflur á allar gröfur á sanngjörnu verði. Utan þessara tækja býður SANY upp á enn fjölbreyttari tækjaflota sem má kynna sér betur á sanyglobal.com.“ SANY á Íslandi leigir líka út vélar til skemmri eða lengri tíma sem gagnast fyrirtækjum og einstaklingum vel þegar kemur að ýmsum stærri og smærri verkefnum. „Viðtökur hafa verið einstaklega góðar og ljóst að leigan okkar er frábær viðbót við markaðinn. Við leigum m.a. út 2-53 tonna gröfur, skotbómulyftara, brotfleyga, skóflur, brotfleyga og brotkjafta svo það helsta sé nefnt.“ Nýr og glæsilegur sýningarsalur SANY á Íslandi er búið að kaupa glæsilegt húsnæði á Flugvallarbraut 731, sem er staðsett á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þar er einnig rekið verkstæði og nýlega opnaði þar nýr sýningarsalur. „Í sýningarsal okkar og á útisvæðinu fyrir utan, má skoða fjölda nýrra véla sem við bjóðum upp á, t.d. beltavélar, skóflur, brothamra, hraðtengi og margt fleira og um leið fá ráðgjöf frá starfsfólki okkar yfir góðum kaffi- eða tebolla. Við erum einnig með verkstæði hér og helstu varahluti fyrir daglegan rekstur. Annars tekur bara einn dag að fá afgreidda varahluti frá lager okkar í Svíþjóð.“ Bóas hvetur sem flesta til að kíkja í heimsókn og skoða nýja sýningarsalinn eða taka upp símann og panta skoðun. „Með því að veita Íslendingum aðgang að tækjum frá SANY tryggjum við að atvinnulífið á Íslandi fái nýjustu tækni, gæði og lausnir fyrir krefjandi aðstæður á sanngjörnu verði.“ Nánari upplýsingar á sany.is.
Byggingariðnaður Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira