Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. október 2024 06:48 Eyðilegging blasir við þar sem áður var moska og verslanir í bænum Nabatiyeh í suðurhluta Líbanon. AP/Mohammed Zaatari Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið.
Um það bil 60 til viðbótar særðust í árás Hezbollah. Greint var frá því um helgina að Bandaríkjamenn hyggjst senda Thaad-loftvarnakerfi til Ísrael og með munu fylgja um það bil 100 hermenn. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir um að ræða „aðlögun“ Bandaríkjamanna að breyttu ástandi, sem væri ætlað að vernda Ísrael og bandaríska hermenn gegn árásum frá Íran og hópum sem njóta stuðnings Íran. Abbas Araqchi, utanríkisráðherra Íran, varaði við því í gær að Bandaríkjamenn væru að stofna hermönnum sínum í hættu með því að senda þá til að stjórna loftvarnakerfum í Ísrael. Araqchi sagði Írani hafa gert mikið til að koma í veg fyrir allsherjarstríð á svæðinu en það yrði engin rauð lína dregin þegar kæmir að því að verja írönsku þjóðina eða hagsmuni hennar. Hezbollah hefur hótað frekari árásum á Ísrael ef Ísraelsher hverfur ekki frá Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld eru nú komin í deilur við Sameinuðu þjóðirnar vegna friðargæsluliða í Líbanon en Benjamin Netanyahu forsætisráðherra hefur sagt að á meðan allt verði gert til að koma í veg fyrir mannfall meðal þeirra þá ættu SÞ að draga starfsfólk sitt frá starfsvæðum Hezbollah á meðan aðgerðum stendur. Að gera það ekki væri að sjá Hezbollah fyrir „mannlegum skjöldum“.
Ísrael Líbanon Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira