Innlent

Einn fluttur á slysa­deild vegna hópslagsmála

Árni Sæberg skrifar
Hópslagsmálin brutust út í Breiðholti.
Hópslagsmálin brutust út í Breiðholti. Vísir/Vilhelm

Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir hópslagsmál í Breiðholti í Reykjavík í gærkvöldi eða í nótt.

Í dagbókarfærslu lögreglu fyrir gærkvöldið og nóttina segir að málið sé í rannsókn. Þá segir frá því tveir hafi verið handteknir grunaðir um innbrot í fyrirtæki í vesturbæ Reykjavíkur,

Loks hafi verið tilkynnt um innbrot í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík og málið sé í rannsókn. Önnur verkefni lögreglu hafi verið tengd umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×