Villi Valli fallinn frá Jakob Bjarnar skrifar 8. nóvember 2024 10:18 Vestifirðingar kveðja nú sína skærustu tónlistarstjörnu til áratuga. Villi Valli var hárskeri á Ísafirði auk þess að vera allt í öllu í tónlistarlífinu. Villi Valli – Vilberg Valdal Vilbergsson, nikkari og rakari er fallinn frá. Hann náði 94 ára aldri. Villi Valli var alla sína tíð mikilvægur þáttur í tónlistarlífi Vestfjarða.
Villi Valli fæddist á Flateyri 26. maí árið 1930 og var nánast alla tíð fyrir vestan, lengst af á Ísafirði, en þar starfaði hann sem hárskeri. Á hinni ómetanlegu Glatsíðu, þar sem haldið er utan um upplýsingar sem snúa að tónlistarmönnum og tónlistarlífi, er vitaskuld kafli um Villa Valla. Þar segir að hann hafi snemma kynnst tónlistinni, fór að fikta við harmoníum orgel í kringum fimm ára aldurinn. Þegar hann var aðeins tíu ára gamall skemmti hann á barnaballi stúku sem hann var í. Á sama tíma var hann einnig orðinn fær á harmonikkuna, en hann var sjálfnema á bæði hljóðfærin. Fallegt bros og góða nærveru Þegar Villi Valli var einungis 12 ára gamall lék hann á sínum fyrsta dansleik. Í fyrstu leigði hann harmonikku en eignaðist svo slíkan grip sjálfur 14 ára gamall. Rúnar Þór tónlistarmaður og Ísfirðingur minnist Villa Valla, segir hann og pabba sinn hafa þekkst, verið saman í lúðrasveitinni, auk þess sem Villi Valli klippti sig til 14 til 15 ára aldurs. Rúnar segir frá því að hann hafi kynnst syni hans Rúnari og spila þeir enn saman í dag. Rúnar er annars þekktastur fyrir að hafa um hríð verið í Þursaflokknum þar sem hann lék á fagott. „Villi hafði fallegt bros og góða nærveru alla tíð og tónlistarmaður var hann i efstu deild; Harmonikka, Sax, Trompet og fleira. Ég eins og allir aðrir elskaði Villa Valla. Farðu i friði vinur.“ Hárskurður og tónlist fer vel saman Á Glatkistunni er ferli Villa Valla gerð skil. Átján ára var hann á síld í Djúpvík og lærði þar að lesa nótur með hjálp Guðmundar Norðdahl. Guðmundur kenndi Villa Valla jafnframt að spila á saxófón. Fljótlega í kjölfar þessa stofnaði Villi Valli sína fyrstu hljómsveit heima á Flateyri, S.V.O.tríóið en á veturna með M.G. tríóinu á Ísafirði. Það virðist hafa verið nóg að gera. Villi Valli á rakarastofu sinni en það virðist fara afskaplega vel saman, að starfa við hárskurð og fremja tónlist. Semma 1950 fór Villi Valli til Reykjavíkur, vildi komast í iðnnám sem ekki tókst en samhliða fiskvinnslu starfaði hann í tónlistinni og lék með hinum og þessum hljómsveitum. Þá um vorið fór hann aftur vestur og hóf nám í hárskurði. Um svipað leiti byrjaði hann að leika með Lúðrasveit Íslafjarðar og samhliða starfrækti hann hljómsveitir af ýmsu tagi: V.V. sextett, V.V. tríó, V.V. & Barði og fleiri. Villi Valli tók við stjórn lúðraveitarinnar 1959 þegar Harry Herlufsen hárskeri flutti uúr bænum en þá keypti Villi Valli jafnframt rakarastofu hans og starfrækti alla ævi. Svo virðist sem rakstur og tónlist fari vel saman. Heiðursborgari Ísafjarðar 2018 „Þegar Villi Valli varð sjötugur vorið 2000 sendi hann frá sér plötu sem bar nafn hans. Á henni er að finna fjórtán lög eftir hann en fjölmargir landsþekktir tónlistarmenn komu að gerð hennar undir stjórn Eyþórs Gunnarssonar, fjölskylda Villa Valla gaf plötuna út,“ segir á Glatkistunni. Þá er nefnt að átta árum síðar hafi önnur plata komið út í hans nafni, Í tímans rás og var hún gefin út af 12 tónum. Margir komu að gerð hennar; vestfirskir tónlistarmenn sem og sunnlenskir en meðal þeirra má nefna Flís-tríóið. Það var Viðar Hákon Gíslason (Trabant og fleiri hljómsveitir) barnabarn Villa Valla sem hafði veg og vanda af þessu verkefni en tónlistin var djassskotin. Árið 2018 var Villi Valli gerður að heiðursborgara Ísafjarðarbæjar. Eiginkona hans var Guðný Magnúsdóttir en hún lést 2017. Þau eignuðust fjögur börn, 8 barnabörn, 5 barnabarnabörn og eitt barnabarnabarnabarn.
Andlát Tónlist Ísafjarðarbær Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira