Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2024 17:23 Úr leik liðanna á síðustu leiktíð. Topplið Hauka vann góðan endurkomusigur á Þór frá Akureyri þegar liðin mættust í Bónus-deild kvenna í dag.
Gestirnir frá Akureyri kom af krafti inn í leikinn gegn toppliði Hauka. Þórskonur voru í 7. sæti deildarinnar fyrir leikinn en leiddu 23-16 eftir fyrsta leikhlutann og héldu áfram að bæta í fram að hálfleik. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 46-37 Þór í vil. Þór hélt frumkvæðinu í upphafi síðari hálfleiks en um miðbik þriðja leikhluta náðu Haukar að minnka muninn í fjögur stig í stöðunni 61-57. Þá kom hins vegar áhlaup hjá gestunum sem náðu mest þrettán stiga forskoti á þeim tveimur mínútum sem eftir lifðu af þriðja leikhluta. Staðan 73-60 og Þór í góðri stöðu. Í lokafjórðungnum virtist hins vegar sem Þórsliðið væri sprungið á limminu. Einungis átta leikmenn voru á leikskýrslu hjá Þór í dag og af þeim komu aðeins sex við sögu í leiknum. Það virtist hafa áhrif því Haukar breyttu stöðunni úr 75-62 fyrir Þór yfir í 82-79 sér í vil á aðeins fjórum mínútum. 20-4 áhlaup og Þór náði ekki vopnum sínum á ný eftir það. Topplið Hauka vann að lokum góðan endurkomusigur, lokatölur 94-85 en Haukar unnu fjórða leikhluta 34-12. Diamond Battles var stigahæst hjá Haukum með 33 og Lore Davos skoraði 24 gegn sínum gömlu félögum. Fyrir Þór skoruðu Amandine Toi og Eva Elíasdóttir báðar 22 stig og Madison Sutton bætti við 13 stigum auk þess að taka 20 fráköst. Haukar halda toppsætinu eftir sigurinn en Haukaliðið var tveimur stigum á undan Suðurnesjaliðunum Njarðvík, Keflavík og Grindavík fyrir umferðina.
Bónus-deild kvenna Haukar Þór Akureyri Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira