Stórkostlegt svar Stólanna gegn toppliðinu Sindri Sverrisson skrifar 3. desember 2024 21:15 Haukar og Njarðvík þurftu bæði að sætta sig við tap í kvöld. vísir/Diego Nýliðar Tindastóls unnu magnaðan sigur á toppliði Hauka á Sauðárkróki í kvöld, 90-86, í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Á sama tíma skelltu Þórsarar liði Njarðvíkur á Akureyri, 106-85.
Tindastóll og Þór eru því með í toppbaráttunni, með 10 stig í 4.-5. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka og tveimur á eftir Njarðvík og Keflavík. Keflavík vann Aþenu 74-59 í leik sem þó var jafn eftir fyrri hálfleik. Hægt er að lesa nánar um hann í greininni hér að neðan. Haukar, sem voru án hinnar bandarísku Dimaond Battles, voru ellefu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann á Sauðárkróki í kvöld, 69-58. Heimakonur minnkuðu hins vegar fljótt þann mun og úr urðu æsispennandi lokamínútur. Tindastóll komst svo yfir þegar að þrjár og hálf mínúta voru eftir, þegar Brynja Líf Júlíusdóttir skoraði þriggja stiga körfu og breytti stöðunni í 81-80. Haukar náðu aldrei að endurheimta forystuna eftir það og urðu að sætta sig við tap. Oumoul Coulibaly var stigahæst hjá Tindastóli með 26 stig og Randi Brown skoraði 19. Hjá Haukum var Eva Margrét Kristjánsdóttir stigahæst með 26 stig og hún tók tíu fráköst. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 22 stig. Sutton með svakalega þrennu Á Akureyri var ekki sama spenna því Þórsarar höfðu þar yfirhöndina allan tímann. Staðan var 33-22 eftir fyrsta leikhluta og sextán stigum munaði í hálfleik, 62-46. Madison Sutton fór á kostum eins og fyrr í vetur og skoraði 18 stig, tók 24 fráköst og gaf 17 stoðsendingar. Hin franska Amandine Toi var stigahæst með 41 stig. Hjá Njarðvík var Brittany Dinkins einnig með 41 stig en Bo Guttormsdóttir-Frost kom næst með 13 stig.
Bónus-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Tindastóll Þór Akureyri Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira