Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. desember 2024 18:02 Haukur Hinriksson hefur starfað undanfarin níu ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Hann hefur starfað undanfarin níu ár sem yfirlögfræðingur Knattspyrnusambands Íslands og tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins í fjórtán ár.
Haukur lék knattspyrnu með KA á Akureyri ásamt því að starfa fyrir félagið sumrin 2008-2012. Hann hefur einnig leikið í meistaraflokki hjá Völsungi á Húsavík, Þrótti Reykjavík og Þrótti Vogum. Alls á hann að baki 59 leiki fyrir KA í næstefstu deild og skoraði í þeim þrjú mörk. Tvíburabræðurnir Hinrik og Haukur Hinrikssynir. Hinrik (til vinstri) er framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Nóa Siríus.fótbolti.net / Sævar Geir Sigurjónsson Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri. Í fréttatilkynningu Víkings segir enn fremur: Haukur hefur sem yfirlögfræðingur KSÍ starfað við góðan orðstír að mörgum mikilvægum verkefnum sem snúa m.a. að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna, svo eitthvað sé nefnt. Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri. Valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga ,,Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdarstjóra. Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn. Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar,“ segir Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings. Ljóst er að Haukur mun hafa í nógu að snúast í nýju starfi. Víkingur hefur vaxið ört undanfarin ár, iðkendafjöldi félagsins hefur aukist og svæði þess hefur stækkað eftir að Fram fluttist úr Safamýrinni. Auk þess streyma nú gífurlegir fjármunir inn í félagið, þökk sé árangri karlaliðsins í knattspyrnu sem tryggði sér í gær umspilseinvígi í Sambandsdeildinni.
Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Víkingar mæta liði Sverris og Harðar Það skýrðist í dag hverjir verða mótherjar Víkings í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Dregið var í beinni útsendingu hér á Vísi. 20. desember 2024 12:24 Arnar ekki heyrt frá KSÍ: „Ekki flókið í mínum huga“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur, hefur ekkert heyrt frá KSÍ varðandi stöðu þjálfara karlalandsliðs Íslands í fótbolta. Sambandið þar af leiðandi ekki beðið Víkinga um leyfi að ræða við Arnar sem reiknar með því, eins og staðan er í dag, að stýra Víkingum í Sambandsdeild Evrópu í febrúar. Hlutirnir geti hins vegar breyst fljótt í fótbolta. 20. desember 2024 12:47 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira
Víkingar mæta liði Sverris og Harðar Það skýrðist í dag hverjir verða mótherjar Víkings í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Dregið var í beinni útsendingu hér á Vísi. 20. desember 2024 12:24
Arnar ekki heyrt frá KSÍ: „Ekki flókið í mínum huga“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur, hefur ekkert heyrt frá KSÍ varðandi stöðu þjálfara karlalandsliðs Íslands í fótbolta. Sambandið þar af leiðandi ekki beðið Víkinga um leyfi að ræða við Arnar sem reiknar með því, eins og staðan er í dag, að stýra Víkingum í Sambandsdeild Evrópu í febrúar. Hlutirnir geti hins vegar breyst fljótt í fótbolta. 20. desember 2024 12:47