Fótbolti

Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hákon Rafn Valdimarsson lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik í kvöld.
Hákon Rafn Valdimarsson lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik í kvöld. Crystal Pix/MB Media/Getty Images

Hákon Rafn Valdimarsson lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik fyrir Brentford er hann kom inn af varamannabekknum í markalausu jefntefli gegn Brighton & Hove Albion í kvöld.

Hákon kom inn á fyrir Mark Flekken á 36. mínútu eftir að sá síðarnefndi þurfti að fara af velli vegna meiðsla. 

Heimamenn í Brighton höfðu ógnað meira fram að innkomu Hákons, en gestirnir höfðu hins vegar komið boltanum í netið á 14. mínútu. Það mark var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu.

Hákon og félagar héldu áfram að liggja aftarlega á vellinum eftir innkomu íslenska markvarðarins og reyndi að beita skyndisóknum.

Hvorugu liðinu tókst hins vegar að koma boltanum í netið á löglegan hátt og niðurstaðan varð því markalaust jafntefli.

Brighton situr nú í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig eftir 18 leiki, tveimur stigum meira en Hákon og félagar sem sitja í 11. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×