HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 18:49 Elísabet Gunnarsdóttir tók við Belgíu snemma árs 2025. Getty/Mateusz Slodkowski Lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur í belgíska fótboltalandsliðinu féllu út með sárgrætilegum hætti í kvöld gegn Póllandi í umspilinu um sæti á HM 2027 í Brasilíu.
Það verður því Pólland sem mætir Írlandi í tveggja leikja úrslitaeinvígi um mánaðamótin nóvember-desember, þegar ætla má að Ísland og Portúgal mætist í sams konar einvígi. Belgar voru 1-0 yfir eftir sigur í heimaleiknum gegn Póllandi en töpuðu á endanum í vítaspyrnukeppni í Gdansk í kvöld. Barcelona-stjarnan Ewa Pajor skoraði tvö marka Pólverja og kom þeim yfir rétt fyrir hálfleik. Elísabet skipti Amy Littel inná í upphafi seinni hálfleiks og hún skoraði eftir aðeins fimm mínútur í sínum fyrsta A-landsleik og jafnaði metin. Paulina Tomasiak kom hins vegar Póllandi yfir á nýjan leik og var staðan 2-1 þegar venjulegum leiktíma lauk, eða samtals 2-2 í einvíginu, og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni skoraði annar varamaður Elísabetar, Jarne Teulings, með skalla á 105. mínútu og virtist vera að koma Belgum áfram í seinni umferðina en Pajor sá til þess að úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni, með marki á 116. mínútu. Í vítaspyrnukeppninni fóru tvær spyrnur Belgíu forgörðum og vann Pólland vítakeppnina 4-3. Öruggt hjá Noregi og Finnlandi Fyrr í dag komst Noregur af miklu öryggi áfram í seinni umferðina með því að slá út Rúmeníu samtals 8-0 eftir 6-0 heimasigur í kvöld. Finnland komst einnig áfram með 3-1 útisigri gegn Serbíu en Finnar unnu einvígið samtals 6-2. Úkraína komst áfram með því að vinna Slóvakíu 1-0 í dag og samtals 4-1. Slóvenía sló út Tyrkland, samtals 5-3 eftir 2-0 sigur í dag, og Austurríki átti ekki í vandræðum með Kósovó og vann 4-0 í dag og samtals 6-1. Þá gerðu Ítalía og Hvíta-Rússland 1-1 jafntefli og það dugði Ítölum til að vinna einvígið 3-1.
HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Sjá meira