Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Samúel Karl Ólason skrifar 2. janúar 2025 23:31 Tesla í hleðslu í Eidfjord í Noregi. Getty/Martin Berry Níu af hverjum tíu bílum sem keyptir voru nýir í Noregi í fyrra voru rafmagnsbílar. Markmið Norðmanna er að selja eingöngu rafmagnsbíla á árinu sem er að hefjast. Formaður sambands rafmagnsbílaeigenda segir Noreg verða fyrsta ríki heimsins til að ná því markmiði að nýskrá eingöngu rafmagnsbíla.
Í heildina var 128.691 nýr bíll keyptur í Noregi í fyrra og samsvarar það aukningu um 1,4 prósent samanborið við 2023. Af þessum bílum ganga 114.400 eingöngu fyrir rafmagni. Það samsvarar 89 prósentum en árið 2023 var hlutfallið 82,4 prósent, samkvæmt gögnum frá OFV, sem heldur meðal annars utan um tölfræði varðandi bíla í Noregi. Á vef OFV segir að bílasala í Noregi hafi þótt lítil árið 2023 og svipað sé upp á teningnum 2024. Sala hafi þau aukist töluvert seinni hluta ársins. Margir hafi keypt smærri og ódýrari bíla vegna hárra vaxta í Noregi og mögulegt sé að sala verði enn í minni kantinum 2025. Þó 128.691 bíll hafi verið keyptur nýr skiptu rúmlega hálf milljón bíla um eigendur í Noregi í fyrra. Það samsvarar fækkun um 1,4 prósent milli ára og þykir það til marks um að Norðmenn vilji eiga bíla sína lengur. Teslur vinsælastar Af þeim sem keyptu sér nýja bíla í Noregi á árinu keyptu flestir Teslu en 13,1 prósent keyptu sér Model Y og 5,6 prósent keyptu sér Model 3. Þá keyptu einnig 5,6 prósent þeirra sem keyptu nýja bíla Volvo EX30 og einnig Volkswagen ID.4. Kínverskir framleiðendur rafmagnsbíla eru samanlagt með rétt rúmlega tíu prósent seldra bíla í fyrra. Í samtali við Reuters segir Christina Bu, formaður sambands norskra rafmagnsbílaeigenda, að Norðmenn verði fyrstir í heiminum til að selja eingöngu nýja rafmagnsbíla. Það er markmið sem Norðmenn hafa ætlað sér að ná á þessu ári. Þó Norðmenn framleiði mikið ef olíu og jarðgasi eru háar álögur settar á nýja bíla sem ganga fyrir þeim aflgjöfum. Þá hefur umfangsmiklum ívilnunum verið beitt til að ýta undir kaup á rafmagnsbílum. Leiðtogar Evrópusambandsins hafa ákveðið að banna sölu bíla sem gefa frá sér koltvísýring fyrir árið 2035. Sjá einnig: „Mun enginn kaupa annað en rafbíl árið 2028“ Hér á landi tók sala rafmagnsbíla dýfu eftir að ívilnanir voru afnumdar áramótin 2023-24. En stefnt er að því að gera nýskráningar bensín- og dísilbíla óheimilar eftir árið 2030.
Noregur Vistvænir bílar Bílar Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent