Viðskipti innlent

Hætta rekstri Súfistans í Hafnar­firði

Atli Ísleifsson skrifar
Súfistinn hefur alla tíð verið staðsettur í einu elsta steinhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 9.
Súfistinn hefur alla tíð verið staðsettur í einu elsta steinhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 9. Súfistinn

Rekstri kaffihússins Súfistans í Strandgötu í Hafnarfirði verður hætt á föstudaginn. Kaffihúsið var stofnað árið 1994 af hjónunum Birgi Finnbogasyni og Hrafnhildi Blomsterberg og hefur verið rekið af þeim og fjölskyldu þeirra frá upphafi.

Greint er frá tímamótunum á Facebook-síðu Súfistans sem hefur alla tíð verið staðsett í einu elsta steinhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 9.

Þar segir að haldið hafi verið upp á þrjátíu ára afmæli Súfistans síðasta sumar en að nú sé komið að leiðarlokum.

„Birgir og Hrafnhildur stofnuðu staðinn með tvær ungar dætur sem báðar hafa tekið virkan þátt í rekstrinum í gegnum tíðina. Valgerður, eldri dóttirin, kom mikið að rekstrinum fyrr á árum en síðastliðin ár hefur yngri dóttirin, Hjördís, séð um allan almennan rekstur Súfistans. Barnabörnin hafa alist upp og unnið á Súfistanum og eiga margar góðar minningar frá staðnum og dyggum viðskiptavinum hans. Nú ætlar fjölskyldan að snúa sér að öðrum verkefnum.

Súfistinn lokar því dyrum sínum fyrir viðskipti fyrir fullt og allt í lok dags föstudaginn 17. janúar eftir 30 ára ævintýri.

Birgir og Hrafnhildur með dætrum sínum Valgerði og Hjördísi.Súfistinn

Laugardaginn 18. janúar verður opið hús fyrir alla viðskiptavini Súfstans milli kl. 13:00 og 18:00 þar sem heitt verður á könnunni og viðskiptavinir geta hist, kvatt staðinn, eigendur og starfsfólk.

Þann dag mun Halldór Árni Sveinsson opna málverkasýningu með nýjum verkum frá Hellisgerði sem hann málaði sérstaklega fyrir veggi Súfistans. Sýningin verður aðgengileg út janúar. Tímasetningar koma síðar.

Við fjölskyldan göngum stolt frá þessu 30 ára starfi okkar og þökkum fyrir allar góðar samverustundir,“ segir á síðu Súfistans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×