Innlent

Telja dóminn rangan og vilja komast beint í Hæsta­rétt

Árni Sæberg skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm

Landsvirkjun hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. janúar síðastliðnum þar sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi og óska eftir því að málið fari beint til Hæstaréttar.

Í fréttatilkynningu segir að ástæða áfrýjunarinnar sé einföld, fyrirtækið telji dóminn í meginatriðum rangan. „Því fer fjarri að hægt sé að túlka vilja löggjafans á þann hátt sem þar er gert.“

Hefði verið risastór pólitísk ákvörðun

Hefði það verið ætlun löggjafans að lög um stjórn vatnamála skyldu standa í vegi fyrir nýjum vatnsaflsvirkjunum á Íslandi sem og öllum öðrum stærri framkvæmdum, svo sem brúargerð, flóðvarnargörðum, dýpkun hafna og fleira, sem kunni að hafa áhrif á vatnshlot, hefði það verið ein stærsta pólitíska ákvörðun þess tíma. Hvergi sjáist merki þess í skjölum eða umræðum á Alþingi á þeim tíma að löggjafinn hafi haft hug á að umbylta málum með þeim hætti.

Í dóminum kemst héraðsdómari að þeirri niðurstöðu að af breytingum sem urðu á frumvarpi að lögum um stjórn vatnamála væri ljóst að það hefði ekki verið vilji löggjafans að heimild væri í lögunum til þess að veita undanþágu frá banni við breytingum á vatnshloti vegna framkvæmda.

Tína til þrennt

Í fréttatilkynningu segir að þvert á móti sé þrennt alveg ljóst þegar ferill málsins á Alþingi er skoðaður.

Í fyrsta lagi hafi tilgangur löggjafarinnar hafi verið að innleiða vatnatilskipun Evrópusambandsins án nokkurra efnislegra breytinga.

„Um breytingartillögur nefndarinnar kemur eftirfarandi t.a.m. fram í ræðu Marðar Árnasonar, þáverandi þingmanns Samfylkingar og framsögumanns umhverfisnefndar: „Að auki leggur nefndin til ýmsar efnisbreytingar sem ekki er fjallað um hér, minni háttar, og þar að auki ýmsar lagatæknilegar breytingar og málfarsbreytingar sem þörf er á við spánnýja löggjöf.““

Í öðru lagi sé tilgangur laga um stjórn vatnamála ekki að koma í veg fyrir allar framkvæmdir sem hafa áhrif á vatnshlot.

„Úr ræðu Birgis Ármannssonar, þáverandi fulltrúa Sjálfstæðisflokks í nefndinni, um málið: „...um það hafa ekki verið hörð pólitísk átök. Fremur hefur verið deilt um orðalag og slíka þætti sem ekki varða neina meginstefnu.““

Í þriðja lagi bendi ekkert til þess að löggjafinn hafi vísvitandi ætlað að þrengja þrengja enn frekar skilyrði fyrir vatnsaflsvirkjunum en vatnatilskipunin mælir fyrir um. 1. júlí árið 2015 hafi Alþingi samþykkt þingsályktun sem færði Hvammsvirkjun úr biðflokki í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. 

„Slík ályktun hefði tæplega náð fram að ganga ef löggjafinn ætlaði að haga stjórn vatnamála á þann veg að koma beinlínis í veg fyrir að virkjunin yrði að veruleika.“

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×