Innlent

Fyrr­verandi bæjar­stjóri Ár­borgar tekur við í Gríms­nes- og Grafnings­hreppi

Atli Ísleifsson skrifar
Fjóra St. Kristinsdóttir með sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps í morgun.
Fjóra St. Kristinsdóttir með sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps í morgun. Gogg

Fjóla St. Kristinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Árborgar, hefur verið ráðin sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. Ráðningin stendur út kjörtímabilið til ársins 2026.

Þetta var afgreitt á fundi sveitastjórnar í Grímsnes- og Grafningshreppi í morgun. Hún tekur við embættinu af Iðu Marsibil Jónsdóttur sem lét nýverið af störfum. 

Í tilkynningu segir að Fjóla sé fædd á Selfossi 1972 og búi þar ásamt fjölskyldu gift Snorra Sigurðarsyni fasteignasala og saman eiga þau þrjú börn, tengdadóttur og eitt barnabarn.

„Fjóla er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands, Bsc í viðskiptafræði, og vottaður fjármálaráðgjafi ásamt því að hafa lokið kennsluréttindum á meistarastigi.

Starfsferill Fjólu er fjölbreyttur og býr hún yfir reynslu á sviði sveitarstjórnarmála en síðastliðin tvö ár gegndi Fjóla stöðu bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Árborg 2022-2024 . Þar áður starfaði hún í tæp 7 ár hjá Landsbankanum á Selfossi, síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði. Þá hefur hún unnið á velferðarsviði Árborgar og bar ábyrgð á fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins. Síðustu ár hefur Fjóla kennt námskeiðið Velferð í fjármálum við Fræðslunet Suðurlands auk þess að kenna fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Fjóla hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina og tekið virkan þátt í margvíslegri sjálfboðavinnu.

Sveitarstjórn Grímsness- og Grafningshrepps fagnar ráðningu Fjólu og hlakkar til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem framundan eru. Fjóla mun hefja störf þann 1. febrúar næstkomandi,“ segir í tilkynningunni. 

„Ég er mjög spennt að hefja störf sem sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps og hlakka til að vinna með sveitarstjórn, íbúum, starfsfólki og fasteignaeigendum sveitarfélagsins að áframhaldandi uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins. Það er mér mikill heiður að taka við starfi sveitarstjóra en ég tel mikil tækifæri felast í samfélaginu og sé spennandi tíma framundan“ er haft eftir Fjólu St. Kristinsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×