Fella úr gildi leyfi til að hýsa hælisleitendur í JL-húsinu Lovísa Arnardóttir skrifar 23. janúar 2025 09:36 JL húsið er í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar hefur verið ýmis starfsemi í gegnum tíðina. Reykjavíkurborg ætlaði að breyta húsnæðinu í úrræði fyrir um 400 hælisleitendur. Vísir/Vilhelm Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um breytingar á skilmálum deiliskipulags Lýsisreits sem heimilaði breytingar á JL-húsinu sem hefði gert mögulegt að hýsa á fjórða hundrað hælisleitenda í húsinu.
Íbúar í fjölbýlishúsi við Grandaveg, sem deila lóð með JL-húsinu, kærðu í desember leyfi borgarinnar til að hýsa hælisleitendur í húsinu og töldu það verulegar breytingar á deiliskipulagi. Það hefði átt að auglýsaa framkvæmdina og kynna hana fyrir íbúum. Áhyggjur nágrannanna eru ekki nýjar af nálinni. Þau hafa kvartað yfir skorti á samráði vegna plana borgarinnar í húsinu. Úrskurðurinn er hér. Reykjavíkurborg hafði ætlað sér að setja upp í húsinu búsetuúrræði fyrir um 326 umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá átti Vinnumálastofnun að vera með aðstöðu á fyrstu hæð. Þá var einnig gert ráð fyrir einhverri tegund af gæslu eða eftirliti og þjónustu sem myndi krefjast viðveru starfsmanns allan sólarhringinn. Nefndin felldi úrskurð sinn í gær og þar er ekki fallist á þau rök Reykjavíkurborgar að ráðgerð notkun hússins sé sambærileg þeirri notkun sem áður hafi verið á húsinu. Þá orki það tvímælis að leggja að jöfnu grenndaráhrif sértæks búsetuúrræðis eins og þarna um ræðir, þar sem dvalið er til lengri tíma, við starfsemi hótels og gistihúss eða skóla. Nefndin féllst því á kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar. Áður hefur komið fram að eigandi hússins hefur þegar hafið framkvæmdir á grundvelli heimildar skipulagsfulltrúa og að nýting búsetuúrræðisins sé þegar hafin. Nýlega kom fram í frétt hjá RÚV að um sextíu konur væru fluttar inn í húsið. Fyrirtækið HB121 keypti húsið árið 2023 og urðu þau tímamót að í fyrravor að Myndlistarskólinn flutti starfsemi sína úr húsinu þar sem hann hafði starfað í aldarfjórðung. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í október að ekki hefði verið nauðsynlegt að boða til grenndarkynningar því áformin væru í takti við deiliskipulag borgarinnar. „Ég held það sé alltaf gott að upplýsa fólk og íbúa. En auðvitað, þetta er húsnæði og þarna hefur verið rekin gististarfsemi. Mér sýnist að það verði áfram, það verður þjónusturými á fyrstu hæðinni þannig þetta er allt saman samkvæmt skipulagi,“ sagði Heiða Björg. Þetta er það sem íbúar við Grandaveg 42 vildu ekki fallast á ekki á í kæru sinni og nefndin styður. Í kæru sinni finna þeir að því að Yrki arkitektar hafi fengið breytingu á deiliskipulagi í gegn með umsókn sinni í nóvember vegna heimildar að vera með sérstakt búsetuúrræði fyrir flóttafólk á Hringbraut 121. Í kæru lögfræðistofunnar Landslaga fyrir hönd íbúa í fjölbýlishúsinu er vísað til þess að fara eigi með breytinguna eins og að um nýtt deiliskipulag sé að ræða vegna breyttrar landnotkunar. Ella hafi borginni borið að setja breytinguna í grenndarkynningu. Því sé málsmeðferð skipulagsfulltrúa ólögmæt.
Reykjavík Hælisleitendur Flóttafólk á Íslandi Skipulag Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Innlent Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Innlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Innlent Fleiri fréttir „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt „Lausa skrúfan“ seld á Akureyri Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sakleysi dætranna hafi gufað upp Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Sjá meira