Íslenski boltinn

Ein­beittur brotavilji Víkinga

Sindri Sverrisson skrifar
Stígur Diljan Þórðarson tekur í spaðann á Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víkingi, eftir komuna í vetur.
Stígur Diljan Þórðarson tekur í spaðann á Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víkingi, eftir komuna í vetur. Víkingur

Víkingar héldu í dag áfram að tefla fram ólöglegum leikmanni í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta, og mega því enn á ný búast við sekt frá KSÍ.

Stígur Diljan Þórðarson, sem kom aftur heim til Víkings í vetur frá ítalska félaginu Triestina, er ekki kominn með félagaskipti og því ekki löglegur með Víkingum á Reykjavíkurmótinu. Þetta er þekkt vandamál hjá þátttökuliðum mótsins en félagaskiptaglugginn opnast ekki fyrr en 5. febrúar og er þá opinn í tólf vikur.

Engu að síður hefur hann nú spilað þrjá leiki með Víkingum á Reykjavíkurmótinu, nú síðast í dag í 3-2 sigri gegn Leikni, samkvæmt Elvari Geir Magnússyni ritstjóra Fótbolta.net.

Stígur Diljan kom inn á í dag og þar með var ljóst að Leikni yrði dæmdur sigur.Skjáskot/@elvargeir

Það þýðir að Víkingum verður dæmt 3-0 tap í leiknum, rétt eins og í síðasta leik gegn Fjölni. Liðið tapaði 5-2 gegn KR og því voru þau úrslit látin standa þrátt fyrir að Stígur Diljan spilaði.

Vegna leikjanna við Fjölni og KR voru Víkingar sektaðir um 60.000 krónur í hvort skipti, og má ætla að þeir verði sektaðir um 60.000 krónur til viðbótar vegna leiksins í dag. Það að láta Stíg Diljan spila á mótinu mun því samtals kosta félagið 180.000 krónur.

Stórt tap KR sem spilar til úrslita

Í öðrum leikjum dagsins vann ÍR 5-0 stórsigur gegn KR, í A-riðlinum sem Víkingur og Leiknir spila einnig í, en KR hafði þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og þar með úrslitaleik.

Í B-riðli gerðu Fram og Þróttur 2-2 jafntefli. Egill Otti Vilhjálmsson og Már Ægisson skoruðu mörk Fram sem missti Fred af velli með rautt spjald á 30. mínútu. Benóný Haraldsson jafnaði meti í 1-1 á 38. mínútu og Hlynur Þórhallsson jafnaði meti ní 2-2 á 71. mínútu. Þróttur endar því með fjögur stig en Fram eitt.

Fylkir og Valur mætast í lokaleik B-riðils í kvöld og getur Fylkir með sigri náð efsta sætinu af Valsmönnum sem annars mæta KR í úrslitaleik mótsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×