Körfubolti

„Ég viður­kenni að það var al­gjör þvæla hjá þér“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leifur Steinn Árnason og Mate Dalmay tókust á í Lögmáli leiksins.
Leifur Steinn Árnason og Mate Dalmay tókust á í Lögmáli leiksins. stöð 2 sport

Leifur Steinn Árnason og Mate Dalmay verða seint sakaðir um að vera sammála um margt. Það kom enn og aftur í ljós í Lögmáli leiksins sem verður á dagskrá Stöðvar 2 Sports 2 í kvöld.

Þeir Leifur, Mate og Tómas Steindórsson fengu það hlutverk að velja lið fyrir Stjörnuleikinn. Hitna fór í kolunum þegar þeir ræddu um stjörnuliðin í Vesturdeildinni og sérstaklega þegar talið barst að Los Angeles Lakers.

Leifur valdi Anthony Davis í sitt lið en Mate LeBron James. Svo hófu þeir að karpa.

„LeBron er ekki besti leikmaðurinn í Lakers. AD er betri í vetur en LeBron. Ég horfi á leiki, ég skoða tölfræðina og svo eru þetta einn plús einn hjá mér. Ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar hjá þér, Mate,“ sagði Leifur en Mate trúði því að hann vildi frekar að Davis yrði aðalkallinn hjá Lakers í einvígi í úrslitakeppninni en LeBron.

„Þú myndir aldrei gera þetta. Þú myndir aldrei velja Anthony Davis fram yfir LeBron James,“ sagði Mate en fyrir tveimur vikum tókust þeir Leifur á um það hvort LeBron væri búinn og ætti að huga að því að henda skónum upp í hilluna.

„Ég viðurkenni að það var algjör þvæla hjá þér. LeBron er einn besti leikmaður í heiminum,“ sagði Leifur áður en Mate skaut inn í.

„Þér finnst hann ekki einu sinni bestur í eigin liði. Eru þeir ekki í 7. sæti?“ sagði Mate.

„Ég trúi því að Lakers geti orðið meistari í vor,“ sagði Leifur.

Klippa: Lögmál leiksins - Deildu um stjörnulið og Lakers

„Þú ert búinn að segja þetta um öll liðin sem við höfum rætt!“ endaði Mate svo á að segja.

Innslagið úr Lögmáli leiksins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttur kvöldsins hefst klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×