Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Árni Sæberg skrifar 28. janúar 2025 13:59 Daði Már Kristófersson er fjármálaráðherra utan þings. Vísir/Sigurjón Fjármálaráðherra segir ljóst að eitthvað hafi farið úrskeiðis þegar stjórnmálaflokkar fengu greitt úr ríkissjóði, án þess að uppfylla skilyrði fyrir slíkum greiðslum. Viðvörunarljós hefðu átt að blikka inni í fjármálaráðuneytinu löngu áður en málið komst í hámæli í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar.
Greint var frá því í gær að í heildina hafi fimm stjórnmálaflokkar þegið framlög úr ríkissjóði áður en þeir breyttu skráningu sinni í samræmi við lög um starfsemi stjórnmálaflokka. Frá 1. janúar árið 2022 var skráning á stjórnmálasamtakaskrá skilyrði fyrir úthlutun framlaga úr ríkissjóði. Þann 25. janúar árið 2022, þegar framlögum fyrir það ár var úthlutað, höfðu Sjálfstæðisflokkur, Flokkur fólksins, Vinstri græn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn ekki skráð sig sem stjórnmálasamtök. Sjálfstæðisflokkur og Píratar bættu úr skráningunni síðar árið 2022, Sósíalistaflokkurinn í nóvember 2023 og Vinstri græn í september í fyrra. Flokkur fólksins er enn skráður sem félagasamtök. Telja sig hafa uppfyllt öll skilyrði Sjálfstæðisflokkurinn sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar fréttaflutnings Vísis af styrkjamálum flokksins árið 2022, þegar flokkurinn fékk greiddar út 167 milljónir króna án þess að vera á stjórnmálasamtakaskrá. Þar segir að Sjálfstæðisflokkurinn líti svo á að hann hafi uppfyllt skilyrði laga til þess að fá fjárstyrk frá ríkinu þrátt fyrir að hann hafi ekki verið skráður sem stjórnmálasamtök. Eyðublað um skráningu flokka sem stjórnmálasamtaka hjá ríkisskattstjóra hefði ekki verið tilbúið fyrr en 12. janúar 2022. Ekki hafi verið kveðið á um að skráningin þyrfti að fara fram innan ákveðins tíma. „Af eðli fjárlaga leiðir að það þurfti að vera innan ársins sem fjárheimildin nær yfir,“ segir í yfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins. Tekið skal fram að lögin sem gerðu skráningu sem stjórnmálasamtök að skilyrði fyrir ríkisstyrk tóku gildi sumarið 2021. Lögunum var breytt til bráðabirgða skömmu síðar þannig að skráningin væri ekki skilyrði fyrir greiðslum fyrir árið 2021. Skráningin var skilyrði fyrir því að flokkar fengju greitt fyrir árið 2022 frá 1. janúar það ár. Greiðsla styrkjanna fyrir árið 2022 fór fram 25. janúar. Kveðið hefur verið á um þá dagsetningu í lögunum frá 2018. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki skráður sem stjórnmálasamtök fyrr en 8. apríl árið 2022. Málið í skoðun Heimir Már Pétursson fréttamaður ræddi við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og spurði hann hvort honum þætti eðlilegt að ráðuneyti hans krefðist þess að þeir flokkar sem fengið hafa greitt án réttrar skráningar endurgreiði framlögin. „Þau mál eru einfaldlega til skoðunar. Það verður að fara í kjölinn á því hvers vegna framkvæmdin var ekki betri en raun bara vitni. Hún hefur verið bætt en við verðum að fara yfir það. Ég get ekki tjáð mig um það fyrr en niðurstaða í því liggur fyrir,“ segir Daði Már. Ábyrgðin ekki hjá Fjársýslunni Daði Már segir ljóst að viðvörunarljós hefðu átt að blikka inni í fjármálaráðuneytinu áður en kom til greiðslna til stjórnmálaflokka sem voru ekki réttilega skráðir. „Þarna hefur verklag brugðist. Það er kannski rétt að taka það fram að sumir fjölmiðlar hafa gagnrýnt Fjársýsluna [ríkisins] í þessum efnum en þetta er ekki á hennar könnu, þetta er á könnu ráðuneytisins. Ég hef látið breyta því verklagi en við verðum að fara yfir það hvar sú ábyrgð liggur. Ráðuneytinu er pólitískt stýrt, þannig að við þurfum að fara yfir það hvar ábyrgðin liggur.“ Ríkissjóður hafi ekki greitt blint út Hann segir það þó alls ekki hafa verið svo að fjármunir hafi runnið frá ríkissjóði til stjórnmálaflokka án nokkurrar gagnrýni. Ýmsir hlutir hafi verið í himnalagi, yfirferð Ríkisendurskoðunar á ársreikningum og annað slíkt. Þá segir hann alveg ljóst að flokkarnir sem fengu greitt hafi verið stjórmálaflokkar, þrátt fyrir að hafa ekki verið skráðir á svokallaða stjórnmálasamtakaskrá. Segjum sem svo að Flokkur fólksins lagi sína skráningu á aðalfundi í febrúar, kemur til greina að endurskoða hvort flokkurinn fái greitt vegna þessa árs? „Við förum að lögunum og uppfylli sá flokkur, eins og aðrir flokkar, skilyrði laganna, fær hann greitt.“
Styrkir til stjórnmálasamtaka Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira