Innlent

Björn Ingi að­stoðar­maður Sig­mundar Davíðs

Lovísa Arnardóttir skrifar
Björn Ingi Hrafnsson starfaði eitt sinn sem aðstoðarmaður utanríkis- og síðar forsætisráðherra. 
Björn Ingi Hrafnsson starfaði eitt sinn sem aðstoðarmaður utanríkis- og síðar forsætisráðherra.  Vísir/Vilhelm

Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður er nýr aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Fyrst var greint frá á vef RÚV en Björn Ingi staðfesti ráðninguna við þau. 

Björn Ingi rekur fjölmiðilinn Viljann og heldur úti hlaðvarpinu Grjótkastinu. Hann segir í samtali við RÚV að hann ætli að halda áfram með hlaðvarpið.

Sigmundur Davíð hefur hingað til verið með tvo aðstoðarmenn, Hannes Karlsson og Unu Maríu Óskarsdóttur.  Ekki liggur fyrir hvort annað þeirra er að hætta. Á vef Alþingis kemur fram að aðrir starfsmenn þingflokks Miðflokksins eru þau Fjóla Hrund Björnsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Laufey Rún Ketilsdóttir.

Björn Ingi starfaði sem blaðamaður til ársins 2002 þegar hann varð skrifstofustjóri Framsóknarflokksins. Árið 2003 varð hann svo aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra sem síðar var forsætisráðherra frá 2004 til 2006. Hann var varaþingmaður kjörtímabilið 2003 til 2007. Björn Ingi sat sem borgarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn 2006 til 2008 en fór svo aftur að starfa í fjölmiðlum.


Tengdar fréttir

Bergþór áfram þingflokksformaður

Bergþór Ólason hefur verið kjörinn þingflokksformaður Miðflokksins. Hann var einnig þingflokksformaður á síðasta kjörtímabili. Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×