Uppgjör og viðtöl: KR - Keflavík 97-93 | Dýrmætur sigur fyrir Vesturbæinga HJörvar Ólafsson skrifar 31. janúar 2025 18:46 KR og Keflavík eigast við í Vesturbænum í kvöld. Vísir/Jón Gautur Hannesson KR vann dýrmætan fjögurra stigur, 97-93, þegar liðið tók á móti Keflavík í 16. umferð Bónus deildar karla. Keflvíkingar lentu mest sautján stigum undir en tókst að jafna í fjórða leikhluta, KR bar þó af þegar allt kom til alls. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik en KR hefur nú safnað sextán stigum. Liðin voru jöfn að stigum með 14 stig, líkt og Álftanes, ÍR og Þór Þorlákshöfn fyrir rimmuna í sjötta til tíunda sæti deildarinnar. KR komst upp að hlið Val og Grindavík með 16 stig í fjórða til sjötta sæti eftir þennan sigur. Leikurinn bar þess merki að bæði lið langaði virkilega í þau tvö stig sem í boði voru í baráttunni um að tryggja sér farseðil í úrslitkeppnina. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik en KR var lengst af skrefinu á undan. KR átti síðasta sprettinn í fyrri hálfleiknum en heimamenn skoruðu sex síðustu stig annars leikhluta og fóru með 59-48 forystu inn í hálfleikinn. Linards Jaunzems var fremstur meðal jafningja hjá KR-liðinu framan af leiknum en þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var Lindards kominn með 19 stig. KR var með þægilegt forskot fram í miðjan fjórða leikhluta en Jarell Reischel jafnaði metin í 78-78 um miðjan fjórða leikhluta. KR-ingar tóku þá aftur við sér og sigldu sigrinum heim með góðum kafla undir lok leiksins og innbyrtu að lokum fjögurra stiga sigur. Jakob Sigurðarson fer yfir málin með leikmönnum sínum. Vísir/Jón Gautur Hannesson Jakob Sigurðarson: Spiluðum frábæra vörn í þessum leik „Þetta var gríðarlega sterkur sigur og ég er ánægður með frammistöðuna. Við spiluðum heilt yfir mjög góða vörn þrátt fyrir að Keflavík hafi skorað 93 stig í þessum leik. Við veðjuðum á að leyfa ákveðnum leikmönnum að taka skot og það veðmál gekk upp,“ sagði Jakob Sigurðarson, þjálfari KR, sáttur að leik loknum. „Keflavík gerði vel í að koma til baka eftir að við höfðum haft í kringum 10 stiga forskot lengst af í leiknum. Við náðum þá aftur aga í sóknarleikinn, koma okkur undir körfuna og í þau skot sem við vildum fara í,“ sagði Jakob enn fremur. „Þessi sigur fleytir okkur upp töfluna og er gríðarlega mikilvægur. Í þessari jöfnu deild skipta hver stig miklu máli og við erum ofboðslega sáttir með þennan sigur,“ sagði hann. Pétur Ingvarsson: Áhugaverð vegferð að vera með tvo Njarðvíkinga að dæma „Við vorum undir lungann úr þessum og náðum okkur aldrei í þann takt sem við viljum komast í. Fyrir utan góðan kafla í fjórða leikhluta þá voru KR-ingar í raun með yfirhöndina allan leikinn. Við hefðum hins vegar getað náð í stigin tvö þrátt fyrir að spila ekki vel,“ sagði Pétur Ingvarsson, ósáttur með frammistöðu sinna leikmanna. „Við náðum að koma okkur inn í leikinn en þá komu mjög dýrir dómar á móti okkur. Tæknivillur og annað sem mér fannst ansi ódýrt. Mér finnst mjög áhugavert hjá KKÍ að senda tvo Njarðvíkinga að dæma þennan leik," sagði Pétur hundfúll. „Það hljóta að vera til fleiri dómarar á landinu en þessir tveir. Mér finnst þetta skrýtin vegferð svo ég segi ekki meir,“ sagði hann enn fremur um dómaratríótið sem dæmdi leikinn í kvöld. Aðspurður um hvort sú saga sem gengur um körfuboltasamfélagið að Callum Lawson sé á leiðinni í herbúðir Keflavíkur sagði Pétur hvorki af eða á en ýjaði að því að hann myndi koma áður en félagaskiptaglugganum lýkur: „Ég get ekki staðfest það en þið sjáið það fyrir miðnætt hvort það gerist eða ekki,“ sagði hann um mögulegan liðsstyrk. Pétur Ingvarsson var ekki sáttur við dómara leiksins. Vísir/Jón Gautur Hannesson Atvik leiksins Keflavík náði að jafna með áhlaupi um miðjan fjórða leikhluta en þá dró Þórir Guðmundur Þorbjarnarson vagninn í frábærum lokaspretti. Stemmingin sveiflaðist þá KR megin og sigurinn endaði Vesturbæjarmegin. Stjörnur og skúrkar Linards Jaunzems var stigahæstur hjá KR-liðinu með 29 stig og Vlatko Granic kom næstur með 24 stig. Linards tók auk þess níu fráköst og það var í raun barátttan um fráköstin sem vó þungt í því að landa þessum sigri. Annars var það liðsvörnin sem skilaði mörgum stigum í hús. Það var enginn sem náði að standa upp úr jöfnu Keflavíkurliði. Dómarar leiksins Dómarar leiksins þeir, Sigmundur Már Herbertsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Jakob Árni Ísleifsson áttu ágætis leik en það voru nokkrir dómar undir lok leiksins sem orkuðu tvímælis og fá þeir þar af leiðandi sex í einkunn. Stemming og umgjörð Það var þétt setið í Vesturbænum í kvöld og góð stemming. Það var úrslitakeppnisbragur á þessum leik. Hiti, stemming og stuðningsmenn létu vel í sér heyra. Keflvíkingar fóru ósáttir á Reykjanesbrautina en KR-ingar fóru glaðir á pöbbkviss inn í félagsheimili sínu. Bónus-deild karla KR Keflavík ÍF
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum