Innlent

Ólöf Tara Harðar­dóttir er látin

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ólöf Tara var kraftmikil í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi.
Ólöf Tara var kraftmikil í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi. AÐSEND

Ólöf Tara Harðardóttir, baráttukona og þjálfari, lést á heimili sínu í gærkvöldi. Hún stofnaði samtökin Öfga og Vitund og var kraftmikil í baráttu gegn kynbundu ofbeldi.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Ólöf Tara fæddist 9. mars 1990. Foreldrar hennar eru Tinna Arnardóttir og Hörður Örn Harðarson.

Ólöf Tara tók mikið þátt í baráttu gegn kynbundu ofbeldi. Hún stofnaði samtökin Öfga og Vitund, sem börðust fyrir breytingum í þágu þolenda ofbeldis. Þá hlaut hún fjölmörg verðlaun fyrir vinnu sína. Helstu baráttumál Ólafar voru byrlanir og kvennamorð. 

Samhliða baráttustörfunum rak Ólöf Tara fyrirtæki þar sem hún sinnti þjálfun sem var sérsniðin að þörfum kvenna.

„Ólöf Tara bjó lengi við ofbeldi í nánu sambandi og mótaði það hana mikið. Hún helgaði síðustu ár lífs síns baráttu gegn ofbeldi og breyttum hugsunarhætti þjóðfélagsins í þeim efnum. En sárin rista djúpt og féll Ólöf Tara fyrir eigin hendi,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Ólafar Töru.

Þau minna á að þeir sem eiga sárt að binda og hafa sjálfsvígshugsanir hafa alltaf stuðning og von.

„Það er einlæg ósk aðstandenda hennar að breytinga megi áfram vænta, að baráttan haldi áfram og skili árangri, að dómaframkvæmd breytist og að samfélagið okkar sameinist um að ofbeldi verði ekki liðið, aldrei! Þörf er á einlægum samskiptum fólks, án upphrópana og hleypidóma. Þörf er á umhyggju, væntumþykju og hluttekningu. Tökum utan um hvert annað í stað þess að taka hvert á öðru,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×