Að frumkvæði Péturs sem leiðir hans og Keflavíkur skildu Aron Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2025 12:30 Pétur Ingvarsson er ekki lengur þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta. Vísir/Hulda Margrét Það var að frumkvæði þjálfarins Péturs Ingvarssonar að leiðir hans og liðs Keflavíkur í körfubolta skildu eftir einlæg samtöl hans og stjórnar að sögn framkvæmdastjóra körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Leit að nýjum þjálfara hefst nú en sá verður ekki kominn í brúnna fyrir næsta leik liðsins á fimmtudaginn kemur.
Það hefur lítið gengið hjá Keflavík í Bónus deildinni undanfarnar vikur og finnur liðið sig nú í 9.sæti deildarinnar þegar sextán umferðir hafa verið leiknar og sex leikir eftir af deildarkeppninni. Verði það raunin eftir leikina sex er ljóst að Keflavík verður ekki með í úrslitakeppninni. Tap gegn KR í síðustu viku reyndist kornið sem fyllti mælinn. „Eins og flestir vita hefur árangurinn hjá liðinu í síðustu leiki, og í raun og veru eftir áramót, ekki verið eins og við vildum. Hvorki stjórn né Pétur. Í samtölum núna um helgina fundum við bara að þetta væri niðurstaðan,“ segir Kristján Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í samtali við Vísi. Við áttum bara mjög góð samtöl við Pétur, einlæg samtöl. Þetta var því niðurstaðan sem við ákváðum að tilkynna leikmannahópnum í gær og í kjölfarið á okkar samfélagsmiðlum. Þetta var allt gert í mesta bróðerni í raun og veru.“ En er hægt að segja sem svo að annar hvor aðilinn hafi tekið fyrsta skrefið í átt að þessu? Er það af ykkar frumkvæði sem þið eigið þessi samtöl? „Í raun og veru átti Pétur fyrsta skrefið í því. Í kjölfarið sest stjórn deildarinnar niður saman og ræðir málin, svo ræðum við saman aftur. Eins og kemur fram í tilkynningunni er þetta algjörlega sameiginleg niðurstaða en frumkvæðið kom svolítið frá Pétri. Hann var auðvitað sjálfur ekki ánægður með það hvernig hlutirnir höfðu gengið og því fór sem fór.“ Flækti ekki málið að synir Péturs spili með liðinu Var þetta ekki einkar flókin staða að ráða úr með það í huga að synir hans spila með liðinu? „Nei. Fyrir fram hefðu kannski einhverjir haldið það en það einhvern veginn spilaði ekkert inn í þetta. Þetta eru fullorðnir drengir, Hilmar búinn að vera í atvinnumennski og Sigurður frábær hjá okkur. Þeir vissu það fyrir að þetta er þeirra heimili í dag og það breytist ekkert. Ekki neitt. Ég átti ágætis spjall við Hilmar í gær og á svo eftir að heyra í Sigurði. Þetta breytir engu fyrir þá. Þeir ganga inn á æfingar og inn í leiki algjörlega eins og áður. Ég hef ekki áhyggjur af því.“ Sigurður Pétursson er einn tveggja sona Péturs, fráfarandi þjálfara, sem spilar með Keflavík.Vísir/Hulda Margrét Nýkomnir úr þjálfaraleit Magnús Þór Gunnarson stýrir næsta leik liðsins á fimmtudaginn gegn ÍR. En væntanlega eru þið að fara hefja þjálfaraleit. Hvenær viljið þið vera búnir að ganga frá þjálfaramálum? „Fókusinn í dag er allur á þessum gríðarlega mikilvæga leik gegn ÍR á fimmtudaginn. Magnús Þór mun stýra þeim leik og Gunnar Einarsson verður honum til aðstoðar. Við þurfum bara aðeins tíma til að ná utan um hlutina, taka utan um hópinn. Fókusinn er á verkefninu á fimmtudaginn en við skoðum öll þjálfaramál gaumgæfilega. Ætlum ekki að flýta okkur í einu eða neinu. Það er auðvitað ekki mikið í boði. Við erum búnir að vera í þessu verkefni með kvennaliðið áður og vitum hversu verðugt það er. En ég hef engar áhyggjur, við erum með góðan mann. Magnús Þór er algjörlega tilbúinn að stíga inn og aðstoða okkur í þessu. Vonandi skýrist eitthvað á næstu dögum en það verður ekkert fyrir leikinn á fimmtudaginn. Hann er í forgangi.“ En eru einhver nöfn á blaði hjá ykkur? „Ég ætla ekki að segja að við séum með nöfn á blaði en það eru auðvitað nöfn sem koma upp og Magnús Þór er einn af þeim. Ég held það sé bara ekki tímabært að ræða það.“ Fókusinn á að komast í úrslitakeppni Keflavík er í 9.sæti deildarinnar um þessar mundir. Hvernig horfið þið á restina af tímabilinu? „Við erum auðvitað í undanúrslitum í bikarnum og þar ætlum við að fara alla leið, verja bikarinn. Markmiðið upp úr þessu er auðvitað að komast í úrslitakeppnina. Það eru erfiðir leikir eftir, tólf stig í pottinum, og það er verðugt verkefni. Tökum einn leik í einu, það eru tveir leikir eftir fram að landsleikjahlé, fókusinn er bara á því. Að komast í úrslitakeppni númer eitt, tvö og þrjú.“ En hvað skilur Pétur eftir sig hjá félaginu? „Það sem kom fram í tilkynningunni snerti bara lítillega á því hvernig Pétur kom inn í félagið. Hann kom með virkilega ferskar hugmyndir, opnaði augun fyrir stjórnarmönnum sem voru kannski búnir að sitja svolítið lengi. Hann kom bara með mikla fagmennsku, skilur eftir sig mikið. Ég vona bara að leiðir okkar liggi saman aftur í framtíðinni. Það sem að hann gerði fyrir félagið var virkilega mikið, þar á meðal þessi bikarmeistaratitill sem hafði ekki komið í hús hjá okkur síðan árið 2012 og gerði mikið fyrir félagið. Við erum virkilega þakklát fyrir allt sem að hann gerði fyrir okkur
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Körfubolti Mest lesið Upprunalega eintakið af þýska skildinum í höndum þjófa Handbolti Ólíklegt að Danir komist aftur á verðlaunapall Handbolti Andri Lucas setti sigurmarkið í Íslendingaslagnum Enski boltinn „Búnir að tala mikið um það að ná vörninni upp“ Körfubolti „Skiptir engu máli hver er fyrstur 80 metra í 100 metra hlaupi“ Sport Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 101-90| Keflavík með öflugan sigur fyrir landsleikjahlé Körfubolti Heimir Hallgrímsson og Eyjólfur Sverrisson spá báðir vítakeppni Íslenski boltinn Elvar mætir í góðu stuði í landsliðsverkefni Körfubolti Veiðifagn Stjörnumanna tekið í japönsku deildinni - myndband Íslenski boltinn Zlatan Ibrahimovic kominn með heiðursbelti í tækvondó Fótbolti Fleiri fréttir „Búnir að tala mikið um það að ná vörninni upp“ Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 101-90| Keflavík með öflugan sigur fyrir landsleikjahlé Elvar mætir í góðu stuði í landsliðsverkefni ÍA - ÍR | Dýrmæt stig í boði Tölfræðikerfið klikkaði í Keflavík Hjón stýrðu sitt hvoru liði í 1. deildinni: Halldór skákaði eiginkonu sinni Ráku syni gamla eigandans „Við vorum teknir í bólinu“ „Nú er tími til þess að sýna að við getum gert betur“ Nýr Kani á leið til Ármanns: „Getur vonandi leyst ýmsa hluti fyrir okkur“ Erfitt að fylla skarð Marios: „Þurfum að finna nýjar lausnir“ Uppgjörið: Njarðvík - Ármann 99-75 | Biðin eftir fyrsta sigrinum lengist Þór Þ. - Stjarnan 99-97 | Langþráðum sigri fagnað í Þorlákshöfn Grindavík - Tindastóll 91-75 | Toppliðið valtaði yfir Tindastól KR - Valur 89-99 | Valsmenn unnu nágrannaslaginn Nývaknaður úr dái en verður fyrirliði gegn Íslandi Michael Jordan gefur meira en milljarð króna Ætla að keyra upp hraðann og koma sér á toppinn Missir af stórleik í kvöld eftir ruslatunnufíaskóið Tryggvi og félagar unnu 63 stiga sigur Brjálaðist og réðst á yngri systur sína Manchester United með lið í NBA LeBron hafði ekki upplifað þetta síðan hann var níu ára Viðsnúningur á Extra-leikunum: „Margir sem spáðu því að þú myndir tapa 22-0“ Uppgjörið: Portúgal - Ísland 100-70 | Heit kartafla í Portúgal Sú dáðasta í sögu liðsins mætti í dulargervi og plataði alla Þrjár breytingar fyrir leikinn mikilvæga í kvöld Stjörnur Grindavíkurliðsins flytja heim til Grindavíkur Martin stigahæstur á leið í undanúrslit Stelpurnar okkar skelltu sér í sjóinn Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 101-90| Keflavík með öflugan sigur fyrir landsleikjahlé Körfubolti
Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 101-90| Keflavík með öflugan sigur fyrir landsleikjahlé Körfubolti